Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Side 33

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Side 33
33 gjá niðr við vatnið; mótar þar víða fyrir fornum götum eða troðn- ingum; er þá farið yfir Öxarárfarveginn gamla. Niðr við vatnið er Almannagjá orðin lítil, eða klofnar þar í smágjár og sprungur; þar hefir legið vegr yfir, og heitir Ferðaiiiannaklif enn í dag. þ>ar virðist víða vera eins og mannaverk úr grjóti yfir gjárnar. Síðan lá vegrinn upp með berghallanuin upp með vatninu og upp í þingið, sem nú er kallað, fyrir vestan ána., þar sem búðatóttirnar eru mestar. þessi vegr var kallaðr Hallvegr; þá var vað á Öxará á leirunum eða söndunum við vatnið fyrir framan túnið á þingvelli, og svo lá vegrinn austr eftir nálægt Vatnskotsveginum, sem nú er kallaðr, og svo til Vellankötlu, og síðan austr til Gjábakka. það er að segja: þá lá vegrinn ekki yfir Gjábakkastíg sem nú, þvíað hann var fyrst gjörðr 1832 eða 1833, heldr sunnar fyrir utan, þar sem Hrafnagjá endar eða er orðin nær að engu ; síðan lá vegrinn austr á Hrafnabjargaháls. þessi Hallvegr lagðist af i jarðskjálft- anum 1789 eða einkannlega vaðið á Öxará fram við vatnið; þar sprakk í sundr og kómu álar, sem eigi var fœrt yfir, enda fóru þá af að mestu hólmarnir fram undan þingvallartúni, sem hafði áðr verið engi töluvert. þegar vaðið lagðist af á ánni, vórugjörðar traðirnar gegnum þingvallartún og austr úr, þvíað annars staðar varð þá eigi vel farið. þetta sögðu mér gamlir menn í þingvallar- sveit eftir sínu foreldri, sem lifði í jarðskjálftanum. Sumir vildu og segja, að eitthvað hefði breytzt í vatnsvíkinni eystri hjá Vellankötlu, og að vatnið sé þar nú hærra enn áðr1. Væri það rétt, að þingvallarhraun hefði sigið niðr austr í vatnsvíkinni, þá hlýtr og Vellankatla að hafa breytzt að útliti frá því sem hún var fyrir jarðskjálftann, þegar vatnið gekk þar á land ; hún er ekkert annað en vatnsuppgangr úr hrauninu hér og þar. 1) það er eftir sögn síra Páls þorlákssonar, sem kom að þingvelli 1780, og var þar prestr, að þegar jarðskjálftinn varð 1789, lá kona hans á sængr- rekkju og skyldi verða léttari; flúðu menn með hana út úr bœnum og var tjaldað yfir henni fyrir framan kirkjudymar, og þar ól hún barnið. Kým- ar vóru yfir í Almannagjá; enginn þorði að sœkja þær nema prestrinn síra Páll; hann segir líka, að þá hafi hranið einstaka smásnasir hér og þar í gjánni, enn engra verulegra breytinga er getið og ekkert er haft eftir honum um það, að hraunið alt millum Almannagjár og Hrafnagjár hafi sigið niðr eða að botninn 1 Almannagjá hafi sigið eða lækkað um eina alin eða meira, eins og Sveinn Pálsson segir í Dagbók sinni (sjá bl. 21 hér að framan). það er þó lítt hugsanda, að síra Páll hefði ekki athugað svo stórkostlega breyting sem þetta, eða getið hennar, þar sem hann var á þingvelli og átti þar heima bæði fyrir og eftir viðburðinn, því að þótt menn hefði eigi veitt því eftirtekt í sjálfum jarðskjálftanum, þá ætti þó fleiri enn Sveinn Pálsson að hafa getað séð það á berginu, enda tekr sverðsfundrinn í sumar, sem getið er hér að framan, öll tvímæli af um þetta mál. Páll prestr hafði þó haft einhverja óljósa hugmynd um, að hraunið hefði jafnvel lækkað einhvers staðar; enn engin rök eru að því leidd af honum. þessa sögu hefi eg eftir Birni, syni síra Bjarnar, sem var á þingvelli, Pálssonar prests, sem áðr er getið. 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.