Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Side 10

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Side 10
IO vegurinn fyrir utan og innan, og ekki mikið af grjóti i þeim, Annaðhvort hefir því lítið grjót verið í veggjum mannvirkisins frá upphafi, eða nokkuð af grjótinu hefir síðar verið tekið upp til að hlaða úr eitthvað annað. Ef nú er spurt um, hvað þetta mannvirki hafi verið, eða til hvers það hafi verið notað, þá verð jeg fyrir mitt leyti að segja, að jeg viti það ekki. En mjög þykir mjer vafasamt, að hjer hafi ver- ið höfð lögrjetta, og skal jeg í svo stuttu máli sem hægt er skýra frá ástæðum þeim, sem þessi skoðun mín hefir við að styðjast, og skal jeg fyrst sýna fram á, að hve miklu leyti það er líklegt, að lögrjetta hafi verið á hjeraðsþingum. í sögum vorum er hvergi talað um lögrjettu á vorþingi eða fjórðungsþingi nema í Grettis sögu á Hegraness þingi1, en þenna stað er reyndar ekki fullkomlega að marka, vegna þess að það er fleira en eitt, sem sýnir, að Grettis saga í sinni núverandi mynd er ekki skrifuð fyr en nokkru eptir það, að landið komst undir kon- ung og norsk lög og stjórnarskipun var inn leidd á Islandi. Verið gæti, að sá maður, sem þetta hefir skrifað í Grettis sögu, hefði blandað saman lögrjettu og dómum, því að á hans tima hafði lög- rjettan dómsvald hjer á landi eins og í Noregi2. Ekki er heldur í 1) Grett. 72. k. 2) Af Ljósvetninga sögu k. 232 2 (í útg. 1880) kynni einhver að vilja ráða, að lögrjetta hefði verið skipuð á einmánaðar samkomu. En einmán- aðar samkoma var ekki eitt af skapþingum, heldur að eins nokkurs konar hreppsfundur og er óhugsandi, að þar hafi nokkurn tíma verið haldin lög- rjetta. Hjer hlýtur því eitthvað að vera rangfært í sögunni. þetta styrk- ist og enn betur, ef vel er gáð að, hvernig á stendur í sögunni. Eyjólfr Guðmundarson hefir tekið við legorðssök á hendur Brandi Gunnsteinssyni eða þeim fóstbræðrum báðum Brandi og Höskuldi þórvarðssyni, fósturson- um þorkels Hallgilssonar að Veisu, og krefur Eyjólfr þorkel bóta á ein- mánaðarsamkomu og spyr hann meðal annars : »Viltú handsala í lögréttu, ok skíri hón sik, ok handsala faðerni, ef hón verðr skír?« Hjer er fleira en eitt athugavert, fyrst það, að handsöl eiga að fara fram í lögrjettu, rjett eins og þau væri eigi jafngild, hvort sem þau fóru fram í lögrjettu eða annars staðar, enda mun það eins dæmi, að handsöl sje veitt i lögrjettu ; í öðru lagi sjest það eigi á staðnum, hvað það er, sem á að handsala í lögrjettu; ef það er faðernið, þá er óþarft að bæta við »ok handsala faðerni, ef hón verðr skír«. Jeg er sannfærður um að hjer á að standa : »Viltú handsala lögréttu (lögrétt ?), ok skíri hón sik, ok handsala faðerni, ef hón verðr skír«. Eptir hinum fornu lögum þjóðveldisins átti aðili legorðssakar að taka rétt eða 6 marka bætur fyrir legorðið af hinum seka, en sjerstaklega skyldi sækja til faðernis; lögréttu er þá þolfall fleirtölu af lögréttr, og koma þá bjer fram tvær löglegar kröfur af Eyjólfs hendi, önnur um réttinn en hin urn faðernið. Líkt stendr á í Guðmundar sögu biskups (Bisk. I. bls. 492) ; þar sækir Kolbeinn Tumason Skæring klerk um legorð, en Guðmundr bisk- up heldur uppi svörum; þar stendur svo : »En Guðmundr biskup býðr at gjalda fyrir málit sex hundruð, ok kallar biskup meira en tvá lögrétto«. Hjer kemur sama orðið fyrir í hinu sama sambandi og í Ljósvetninga sögu,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.