Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Síða 12
12
f>egar um hina eldri tíma er að ræða, verða menn því vandlega að
íhuga, hvort ekki sjeu líkur til, að rjettar ástandið þá hafi verið
öðruvísi en þvi er lýst í lögbókunum. Af lögbókunum virðist mega
ráða, að löggjafarvaldi hjeraðsþinganna hafi á 12. og 13. öld verið
settar nokkuð þröngar skorður. En er víst, að svo hafi verið frá
upphafi ? Alls ekki. Lífið og sálin í hinu islenzka þjóðríki er frá
upphafi goð'orðið. Jafnóðum og land er numið myndast hvert goð-
orðið á fætur öðru kring um allt land. En hvert eitt goðorð má
skoða sem ríki út af fyrir sig með sínum lögum, sinni stjórn, sínu
þingi. Öll þessi smáríki vóru sjálfstæð og óháð hvert öðru, allt
þangað til að alþingi var sett, og auðvitað er, að hvert ríki um
sig skipaði sinum lögum cg dómum eptir vild sinni á sinu þingi
undir yfirráðum goðans. Hjeraðsþingin eru þannig frá upphafi
sjálfstæð þing með löggjafarvaldi og dómsvaldi, og liklegt er, að
bæði löggjöf og dómar hafi upphaflega á þessum þingum eins og
í Noregi verið í höndum einnar og hinnar sömu nefndar, hvortsem
hún nú hjet lögrjetta eða dómar1. þ»að er svo að sjá, sem mönn-
um á þessum timum hafi enn eigi verið orðinn fullljós munurinn á
löggjöf og dómum. þ>egar alþingi var sett, varð eitt riki úr öllum
þessum smáríkjum, að minnsta kosti að nafninu, og gat þá eigi hjá
því farið, að þessi stjórnarbreyting skerti sjálfstæði hinna einstöku
ríkja og drægi til alþingis nokkuð af því valdi, sem goðarnir og
þingin í hjeröðum þeirra áður höfðu haft heima fyrir. En hins veg-
ar er það þó ólíklegt, að goðarnir og hjeraðsþingin þá hafi slept
mestöllu eða miklu af valdi sínu innan hjeraðs við alþingi. Goð-
arnir rjeðu eptir sem áður mestu heima í hjeraði ; þeir hjeldu þing
hver fyrir sitt goðorð. Á þessum þingum vóru skipaðir dómar
eptir sem áður til að dæma mál manna; það má sjá á ýmsum stöð-
um í sögunum, enda hjeldu hjeraðsþingin ávalt siðan dómsvaldinu,
meðan þjóðríkið stóð. En hafi nú, eins og áður var sagt, löggjaf-
arvald innan hjeraðs frá upphafi verið falið sömu mönnunum sem
dæmdu, þá er engin ástæða til að halda, að þetta hafi verið greint
sundur, þegar alþingi var sett. Maurer heldur, að lögrjettan og
dómarnir hafi hvortveggja verið eitt á alþingi fyrst framan af, allt
þangað til að hin mikla breyting var gjörð á stjórnarskipun landsins,
sem kennd er við jþórð gelli (um 965)2. þ>á eru engar líkur til, að
öðruvísi hafi verið á þingum goðanna heima í hjeraði. J>að má því
telja það víst, að allt hafi verið eitt dómar og lögrjetta á hjeraðs-
þingunum allt fram að þessum tíma. Við nýmæli jpórðar gellis
varð sú breyting á þingaskipun í hjeraði, að goðarnir, sem áður
höfðu haft eitt þing hver og ráðið á því lögum og lofum, áttu nú
1) Sbr. Konr. Maurer : Upphaf allsherjarríkis d Islandi bls. 134—137.
2) Maurer : Upph. allsherjarríkis bls. 147.