Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Síða 19
nokkuð af efni því, sem þær hafa verið gjörðar úr, hefir verið
haft í aðrar tóttir. þ>að er í þessu efni eptirtektavert, að margir
af tóttarveggjunum eru i flagi, eins og rótað hefði verið í þeim, og
óvíða sjást í þeim stórir undirstöðusteinar, heldur er mest af grjóti
því, sem þar sjest nú, smávaxið hnullungsgrjót. Mjer þykir því
ekki ólíklegt, að eitthvað hafi verið rótað við tóttunum á siðari
timum og nokkuð af veggjum þeirra hafi verið haft í aðrar tóttir.
Ekki sjást þó nú neinar slíkar tóttir á eyrinni, sem gæti verið
byggðar úr efni hinna tóttanna, nema hin optnefnda kringlótta tótt
og ef til vill tótt sú, sem jeg gat um að hefði nokkuð önnur ein-
kenni en hinar tóttirnar, og sem sjórinn nú að miklu leyti hefir
brotið af. fað er ekki ómögulegt, að þessi tóttarrúst sje yngri en
hinar og hafi verið verzlunarbúð. Enn fremur er það alls ekki
óhugsandi, að fleiri verzlunarbúðir hafi áður staðið fremst á sjávar-
bakkanum, en að sjórinn hafi nú brotið þær af. það er reyndar
eigi fullsannað, að verzlun hafi verið á Valseyri, en þó eru um
það munnmæli í Dýrafirði. Gamall maður, sem jeg talaði við í
Innri Lambadal og sem var gagnkunnugur á Valseyri, vissi ekk-
ert um, að þar hefði nokkurn tíma verið þingstaður, en fullyrti, að
sjer hefði verið sagt það í barnæsku, að þar hefði verið verzlun.
fessi munnmæli má rekja aptur í timann þangað til um 1700
Olavius segir í ferðabók sinni á 15. bls., að menn segi, að verzlun-
in hafi áður á tímum Hansastaðanna verið á Valseyri og að þar sjá-
ist leifar af húsunum, og í því, sem Árni Magnússon hefir safnað
til sögulegrar og staðlegrar lýsingar íslands, er það sagt hiklaust,
að á Valseyri sjáist leifar af verzlunarbúðunum1. En hvað er nú
orðið af þessum verzlunarbúð um ? Tóttir þær, sem nú sjást á eyr-
inni, hafa eflaust aldrei verið verzlunarbúðir, nema ef vera skyldi
sú eina, sem fyr var getið. þess mætti til geta, að verzlunarbúð-
irnar væri af brotnar af sjónum, líkt og nokkur hluti þessarar einu
búðar. þ>ær hafa líklega staðið fremst á sjávarbakkanum, og hefir
því verið hætt af sjávargangi. það má sjá á Gísla sögu Súrssonar,
að eyrin hefir áður gengið fram í odda2. þ>essi oddi hlýtur nú að
1) Kr. Kálund: Hist. topogr. beskr. af Island II, bls. 417. Seint á
16. öld hefir þó kaupstaðurinn verið kominn að þingeyri; sjá Kálund, s.
st. bls. 37720.
2) Sbr. það sem Sigurður Vigfússon segir um þetta í Arbók 1883 á 12.
bls. Meiri sagan hefir eflaust hjer sem optar rjettara fyrir sjer en minni
sagan. Minni sagan segir, að þeir þorgrímr, Gísli, þorkell og Vésteinnhafi
gengið »út í Eyrarhvolsodda«, er þeir ætluðu að sverjast í fóstbræðralag;
þetta getur ekki verið rjett, því að menn tala annars aldrei um »odda« á
hólum, hvorki að fornu nje nýju. Meiri sagan segir, að þeir hafi gengið
út »á eyraroddann«, og er það í alla staði eðlilegt og rjett. það ér reyndar
satt, að Valséyri er nokkuð kúpuvaxin, en ekki hefir hún þó þá lögun, að
hægt sje að hugsa sjer, að hún hafi nokkurn tíma verið kölluð Eyrarhváll.
3*