Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Page 26
2Ó
og önnur að ofan utan um vænginn1. Efst til vinstri handar, rjett
hjá ljónshöfðinu, sjest trje, sem sýnist vaxa upp úr eins konar jurta-
potti, en hins vegar til hægri fyrir ofan hinn gínandi drekahaus
sjást þrír litlir drekahausar eins og í hólfi sjer, og eru það líklega
ungar drekans, sem horfa á leikinn úr híði hans þar nálægt. Fyrir
ofan riddarann til vinstri flýgur haukur riddarans. Merkilegt er,
að þrátt fyrir þá hreyfing, sem hjer er á öllu, á orminum, sem blaðr-
ar tungunni og lyptir sjer upp á kviðnum af sársaukanum, á hest-
inum, sem er á harða stökki, og ljóninu, sem hefst upp að framan
og auðsjáanlega reynir að losa sig úr drekabugðunum, þá stendur
þó, þegar betur er að gáð, allt kyrt. Ormurinn er fjötraður öðru-
megin af trjenu en hins vegar af ljóninu. Ljónið er rígbundið af
drekanum, og hesturinn er kominn í þá úlfakreppu milli sverðs
riddarans og drekans, að hann getur með engu móti komizt áfram
lengra, þó að hann sýnist vera á fleygiferð, og að aptanverðu
hindrast hreyfingar hans af því, að hann klofar með apturfótunum
yfir bakið á ljóninu. Að því er snertir drekann og ljónið, hefir smið-
urinn eflaust gjört það af ásettu ráði að setja þetta þannig fram.
En aptur á móti hefir það sjálfsagt ekki verið tilgangur hans, að
láta hestinn vera þannig rígfastan að framan, heldur á að hugsa sjer
hestinn lausan og óhindraðan af sverðinu; en þetta hefir orðið
svona á myndinni, vegna þess að smiðurinn myndaði drekann á bak
við framfæturna á hestinum, í stað þess að láta hann liggja fyrir
framan þá.
Fyrir ofan þverstryk það, sem áður var getið, skiptist myndin
í tvennt. Fyrir miðju sjest riddarinn ríða sigri hrósandi frá einvígi
sínu við orminn, og situr haukurinn nú í kyrð á makka hestsins, en
á eptir honum stikar ljónið ; það leggur niður halann undir kvið-
inn, eins og til að sýna riddaranum auðmýkt sýna, en endinn á
halanum gnæfir í lopt upp á bak við það til merkis um gleði þess,
og er athugavert, að halinn er þríklofinn í endann, líkt og trjen á
neðri myndinni. Riddarinn heldur á einhverju í hægri hendi, sem
virðist vera blóm (lilja ?), og á það víst að vera sigurteikn2. Skjöld-
inn hefir hann á hægri hlið hjer eins og á neðri myndinni, og er
það undarlegt, því að riddarar vóru vanir að bera skjöldinn vinstra
megin. Sverðið kemur fram á bak við skjöldinn, og á eflaust að
1) Jeg hefi heyrt marga efast um, að þetta væri trje, og hafa þeir
.haldið, að það væri ormur. En hvorki sjest á því neitt drekahöfuð, nje
heldur endar það á mjóum sporði eins og allir drekarnir á hurðinni bæði að
neðan og ofan. Auk þess er það greinilega áfast við jörðina að neðan, og
að ofan klofnar hið efsta af því í sundur í þrennt, alveg eins og á litlu trján-
um, sem sjást undir kviðnum á hestinum, og sjást þar blöð, sem eru mjög
lík blöðunum á trjenu, sem er efst til vinstri handar.
2) Verið gæti og, að þetta ætti að tákna einhvern part af einni kló drek-
ans, og kæmi það heim við Konráðs sögu, sem síðar mun sagt.