Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Qupperneq 68
62
henni, sem verulega verði rannsakaðir. Kafli úr Laxdæla s. kemr
og við þessu héraði, og nokkur kafli úr Njáls s. og Grettis s.;
Eyrbyggja kemr og hér litið eitt við. Margir kaflar úr Sturlunga
s. eru i Borgarfirði, enn bæði hún og Landnáma b. gerast um alt
land, sem kunnugt er. Rannsóknin í Borgarfirði kemr því meira
eða minna við allar þessar níu sögur,aJb frátekinni Gunnlaug > s. orms-
tungu.sem ekki kemr hér verulega við, sem fyrr segir. Vígastv rs s.,sem
er eiginlega fyrri hlutinn af Heiðarvíga s., viðkemr og Borgarfirði; enn
þó hún hafi upprunalega verið gömul og góð saga, getr hún ekki
orðið verulega lögð til grundvallar fyrir rannsókn, þvíað sagan er
uppskrifuð eftir minni, þviað hið gamla handrit brann í Kaup-
mannahöfn 1728, ásamt fleiru, sem kunnugt er; sjá formálann fyr-
ir 2. b. af íslendinga s. eftir Jón Sigurðsson, Kjobenhavn 1847 bls.
XXXIV—V.
Mosfell.
þriðjudaginn, 2. sept., fór eg af stað úr Reykjavík, síðara hluta
dags, og upp að Mosfelli, var þar um nóttina. Hér kemr stax til
Egils s. Skallagrímssonar, og síðan til landnáms þ>órðar Skeggja.
þ>etta þurfti eg að athuga betr. Grímr Svertingsson bjó að Mos-
felli víst mestallan síðara hluta 10. aldar, ogfram yfir 1000. Hann
var ættstór maðr og göfugr og lögsögumaðr um hríð ; hann átti
fórdísi þórólfsdóttur Skallagrimssonar; þegar Egill seldi af hönd-
um bú að borg, fór hann suðr til Mosfells til J>órdísar bróðurdótt-
ur sinnar og var þar í elli sinni og andaðist þar, og hér fal Egill fé
og koma hér fram í sögunni ýmsar staðlegar lýsingar.
Sira Magnús heitinn Grimsson, sem var prestr á Mosfelli, hefir
skrifað ritgerð um þetta efni, „Athugasemdir við Egils sögu“ i Safni
til sögu íslands, Kaupmh. 1861, II. bl. 251—76. Ritgerð þessi er
mikið fróðleg og skemmtilega skrifuð, og vel lýst mörgu lands-
lagi á Mosfelli og þar í kring; þarf eg því ekki svo mjög að tala
um það. Síra Magnús heldr, að bœrinn Mosfell hafi í fyrstu stað-
ið þar sem Hrísbrú nú er, sem er litilfjörlegt kot, skamt fyrir ut-
an túnið á Mosfelli, og að Grimr Svertingsson hafi búið þar; hann
ímyndar sér, að bœrinn hafi verið fluttr — líklega einhvern tíma fyr-
ir miðja 12. öld — frá Hrísbrú og þangað sem hann nú stendr, og
hafi þá nafnið flutzt á þenna nýja bœ, enn nafnið Hrisbrú verið gefið
þeim stað, þar sem hið forna Mosfell stóð; meðal annars um þetta
bls. 255 og 260—261. Allar þessar getgátur byggir höfundrinn ein-
kannlega á því, sem stendr í Egils s. Reykjavíkr útg. um flutning
á kirkju þeirri, er Grímr Svertingsson lét byggja að Mosfelli, eða
sem stóð þar sem síðar hét á Hrisbrú, og flutt var síðar heim að
bœnum. Eg get nú ekki vel fallizt á alt þetta, með því að hvorki
Egils s. eða nokkur önnur saga nefnir þenna bœjarflutning, og eg