Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Side 76
70
að segja, því að þúfur geta vel snúið í sömu átt margar; enn það
getr vel verið, að kirkjan hafi fyrst staðið hér, og verið síðan flutt
upp á hólinn ; og gæti þá sá kirkjuflutningr átt við það, sem bæði
Hrappseyjarútg. og handritið segja1. |>að er ekki svo þýðingar-
mikið fyrir Egils sögu, hvort hin fyrsta kirkja á Mosfelli hefir stað-
ið heima við bœinn eða úti á Hrísbrú; hvorttveggja hét „at Mos-
felli“ sem áðr er sagt. Líklegt er, að það kunni að vera réttast,
sem Rv. útgáfan segir, og að það handrit, sem hún er komin af,
kunni að vera elzt. Enn hitt er meira vert, um bœjarflutninginn,
sem ekkert af þessum þremr handritum nefnir á nafn.
Eg hefi verið nokkuð langorðr um þetta efni, þvíað mér þótti
þess þurfa sögunnar vegna, og mætti þó fleira tilfœra; enn eg
skal vera því stuttorðari um, hvar Egill hafi fólgið fé sitt, og lofa
einum sem öðrum að hafa sínar ímyndanir, getgátur og munn-
mælasögur. f>ær geta verið mikið góðar, þar sem þær eiga heima,
enn eg er þeirrar meiningar, að ekki verði á þeim bygt, þegar
um rannsókn er að rœða. Höfundar Egils s. vita sjálfir einu sinni
ekki, hvar Egill muni hafa fólgið féð, og vóru þeir þó nær því
enn vér; enn þess er ekki von, þvíað Egill sagði það engum manni.
Sá, sem ritað hefir það handrit, sem liggr til grundvallar fyrir
Kh.útg.=Rv.útg., getr til á þremr stöðum bls. 228. Eg skal geta
þess hér, að hvorki Hrappseyjarútg. né handr. geta neitt um það, þeg-
ar Egill ætlaði að sá silfrinu að lögbergi; þau sleppa alveg þeim
kafla ; eg verð að taka hér þenna stað einungis til þess að sýna,
hvað öllu er hér rétt lýst, og sem sýnir hvað ritari sögunnar hefir
verið kunnugr, bls. 227—8: „pat var eitt kveld, er menn bjuggust
til rekkna at Mosfelli, at Egill kallaði til sín þræla tvá, er Grímr
átti. Hann bað þá taka sér hest. „Vil ek fara til laugar, ok
skulu þér fara með mér“, segir hann. Ok er Egill var búinn, gekk
hann út ok hafði með sér silfrkistur sínar. Hann steig á hest.
Fóru þeir síðan ofan eptir túninu, ok fyrir brekku þá, er þar verðr,
er menn sá síðast. En um morguninn, er menn risu upp, þá sá
þeir, at Egill hvarflaði á holtinu fyrir austan garð, ok leiddi eptir
1) Öllum þessum þremr handritum ber saman um, að við þenna kirkju-
flutning á Mosfelli hafi verið staddr Skafti prestr þórarinsson, og öllum
ber þéim líka saman um, að kirkjan, sem var ofan tekin, hafi verið sú kirkja,
er Grímr Svertingsson lét byggja; þar af er þá Ijóst, að kirkja Gríms hefir
þá enn staðið, og hefir hún þá orðið um 150 ára gömul. það má finna mörg
dœmi þess, hvað hús stóðu ákaflega lengi bæði í fornöld og á miðöldunum.
þetta er og eðlilegt, þvíað annaðhvort bygðu menn af rekaviði, sem end-
ist svo lengi, eins og kunnugt er, éða menn gátu valið viðinn í Noregi, þ.
e. sóttu hann þangað ; þá voru ekki mjög sparaðir skógarnir; menn bygðu
og sterkt, þegar menn vildu vanda eitthvert hús. það sýna þær leifar, sem
bæði eg og aðrir hafa séð, og eins má sýna viðargœðin.
r