Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Síða 91
85
var þar úti kona ; Grettir k.vam á Gilsbakka um daginn“. pessi
frásögn eða staðlega lýsing er í alla staði rétt í Grettis s. J>etta
hét að fara upp með Hvitá, þar sem Grettir fór þenna langa
veg alt upp fyrir sunnan ána, þó að landslag ekki leyfði að fara
rétt með henni, þar vegrinn liggr nokkuð hærra. Grettir hefir lík-
lega farið yfir Hvítá á Kláffossi, hafi þá brúin verið komin þar
(Um hann skal síðar meira talað), eða hann hefir farið á Fróðastaða-
vaffi, sem er nokkru ofar og gott vað, og þá upp Síðitna. Eg
hefi farið þenna veg. Eins og fyrr segir, stendr Bœr skamt austr
undan rústunum, þar sem Bakki var. Hin mjóa tunga, sem gengr
niðr að Hvítá, millum Flókadalsár að neðan, enn Reykjadalsár að
ofan, heitir Kálfanes; þær ár renna báðar í Hvítá. Kroppr stendr
aftr hærra uppi, fyrir ofan Geirsá, sem rennr í Reykjadalsá.
Geirsá er líklega kend við Geir auðga, föður Blundketils; hann
bjó í (xeirslllíð sjá landnb. bls. 59 og 60 ; hún stendr fyrir norðan
ána. Deildartunga er fyrir norðan Reykjadalsá, og stendr hátt
uppi i tungunni, sem bœrinn dregr nafn af. Hún er millum Hvítár
og Reykjadalsár. Nú skal eg enn fremr bera saman við rannsókn-
ina ferð Grettis upp með Hvítá og upp hjá Bakka. f>að er auð-
séð, eins og fyrr segir, að túnið á Bakka — þó þar sé nú orðið
fornfálegt — hefir náð ekki allskamt niðr eða vestr með ánni, og
verið því mestalt á þann veg við bœinn. Nú setjum vér það, sem
liklegt er, að Söðulkolla hafi verið fyrir vestan túnið, þvíað sagan
segir „við túnit“. þ>á verðr hún fyrir Gretti, þegar hann kemr
neðan frá Júngnesi ; síðan ríðr hann fyrir ofan túnið og fram hjá
bœnum, sem stóð á bakkanum, þvíað heim á bœinn hefir Grettir
ekki farið, þar sem hann tók hrossið í óleyfi, og þá hlýtr hann
að hafa riðið fyrir neðan Bœ, o. s. frv. J>ar sem sagan segir, að
Bakki sé upp frá f>ingnesi, þá er það rétt að miða við þann bœ,
vegna þess að þúngnes var nafnkunnr bœr. J>ar var hið forna
héraðsþing Borgfirðinga. þ>að gat því ekki komið til greina, þó
að lítið kot væri á millum þessara bœja, nefnil. Bakkakot, hafi það
annars verið bygt fyrr enn síðar, eða undir það að Bakki fór að
eyðileggjast. þ>að er því samkvæmt i báðum þessum sögum Laxd.
s. og Grettis s., að miðuð er við Bœ bæði reið þeirra þ>orgils og
Grettis, þvíað hann var hér helzti bœrinn og mjög kunnr. J>or-
steinn Gíslason bjó í Bœ, sá er Snorri goði tók af lífi ; í Bœ var
stofnað hið fyrsta klaustr hér á landi um 1030, enn ekki stóð það
nema skamma stund. Róðólfr byskup bjó í Bœ um 19 vetr. Hann
mun hafa verið frá Rúðuborg á Frakklandi, Landn.b. bls. 51.
Nokkrir af Sturlungum bjuggu og í Bœ, sem kunnugt er. J>ess
vegna er Bœr oft nefndr í Sturlunga sögu. Bakkavað er og nefnt
í Harðar s. Grímkelssonar bls. 116, þegar Helga jarlsdóttir eggjaði
Grímkel son sinn til hefnda eftir Hörð. Hann sat fyrir þ>órði Koll-