Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Qupperneq 138
132
Sumir hafa getið til, að Gullteigr muni hafa verið flatir þær,
sem eru austr frá þorgautsstöðum, sem kallaðar eru Gilflatir. Eft-
ir þeim rennr nú gil mjög niðrgrafið ; enn suðr af flötunum eru
sléttir melar alt suðr að Hvítá, sem kallaðir eru Háafellsmelar, og
er það ekki allskammr vegr. þetta er flatt land og liallar ekkert
suðr til árinnar, enn það eru ljós orð sögunnar, að formóðr hljóp
„niðr“ til árinnar, og eiga þau orð beinlínis við Teigana fyrir vest-
an bœinn, enn als ekki ekki hér, enda er þessi vegr alt of langr,
nfl. af flötunum og suðr að ánni; þar að auki getr þett með engu
móti heitið að fara „niðr“, heldr suðr. Hér við bætist enn, að
þegar riðið er ofan með Hvítá að sunnanverðu, þá mun ekki
glögt sjást á áðrnefndar flatir, enn Teigarnir blasa við, og þetta
var höfuðatriðið i þessu máli, nfl. að njósnarmenn Barða sæi glögt
á Gullteig. J>að mun því óefað, að hinn forni Gullteigr hefir ver-
ið fyrir vestan bœinn á J>orgautsstöðum, þar sem nú eru kallaðir
7eigar, samkvæmt því sem hér að framan er sýnt, og þessi kafli
af Heiðarvígas. hefir reynzt réttr, að því er af staðlegum lýsingum
verðr séð.
Að endingu skal eg setja hér litla frásögu, því að vera má,
að hún sé þessu efni nokkuð viðkomandi: Olafr Olafsson á Skán-
ey, sem nú er 80 ára gamall og maðr réttorðr, sagði mér hana eft-
ir jporsteini Jakobssyni frá Húsafelli, sem gerði við laugina. Hann
var kunningi Olafs. J>orsteinn var við, þegar tekin var gröf að
Einari J>órólfssyni, föður Halldórs sýslumanns i Borgarfjarðarsýslu,
og þeirra syskina. J>á komu upp úr Síðumúlakirkjugarði 9 haus-
kúpur og fleiri bein. í einni hauskúpunni, sem var ákaflega þykk,
sáust glögt 3 högg eftir eggjárn; tvö voru ekki í gegn, enn með
hinu þriðja var hauskúpan klofin; líka sáust högg í fleiruro bein-
um, og þar sem voru sniðhögg, sást einkanlega móta fyrir, að egg-
járnin hefðu verið með skörðum. Tvær af þessum hauskúpum,
sem fundust, voru minni, og litu út fyrir að vera af ungum mönn-
um, Beinin vóru látin niðr aftr; þetta var einhvers staðar fyrir
norðan kirkjuna í Síðumúla kirkjugarði. Sama sagði Olafi Árni,
sonr Einars, tengdafaðir Hjálms, fyrrverandi þingmanns, á Hamri;
enn greinilegast sagði Olafr frá þessu. J>essa sögu skrifaði eg upp
eftir Ólafi, þegar jeg kom að Skáney, sem fyrr er sagt.
J>egar eg kom að Hvítárvöllum síðar í þessari ferð, þá sagði
Andrés Fjelðsted mér sömu söguna eftir J>orsteini, og bar henni
alveg saman, nema hvað hans sögn var nokkuð nákvæmari um
höggin i hauskúpunum. Andrés sagði mér, að J>orsteinn hefði sagt
sér, að á stóru hauskúpunni, sem þrjú höggin voru í, hefði haft
verið í miðjunni í högginu, sem hafði klofið kúpuna, sem J>orsteinn
í fljótu bragði hefði ekki skilið, hvernig stóð á. f>etta kom honum
til að athuga þetta nákvæmar; hann hreinsaði því í burtu moldina