Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1884, Page 151
i45
íbúðar, skrifa þar og geyma skjöl sín, þá mundi hann finna, að það
eigi væri af makindum, heldur af fullri nauðsyn, að menn þessir gjöra
sjer búðir. Til þeirra sje haft litið eitt af torfi og grjóti; þær sje
nokkrar álnir á hæð og eigi stœrri ummáls en að í þeim geti
staðið sæng ein, borð og stóll. feir, sem hafi búðir þessar, sje
amtmaður, lögmennirnir, landfógeti, landsþingisskrifarinn, sýslumenn
allir og konungsþjónar, og megi þeir ekki án þeirra vera, enda
verði þeir að fara langa leið fram og aptur og koma á þing, bæði
til rjettarhalds og til þess að greiða gjöld og skuldir til landfó-
geta.
Stiptamtmaður heldur að lokum alls ekki, að byskup haldi fram
máli prestsins, af því hann sje gestur prests og til húsa hjá hon-
um, og leggur svo til, að úr máli þessu sje skorið á þann hátt, sem
gjört er í konungsbrjefinu.
Af brjefi þessu má ráða, að búðir með veggjum og tjöldum
hafi lagzt af um langan tíma, að minnsta kosti eigi verið hafðar
siðara hluta 17. aldar og fram á 18. öld þangað til um 1730, og að
nýlegustu búðirnar á þ>ingvöllum, sem eru mjög einkennilegar að
því, að þær eru mjög litlar og opt byggðar ofan á hinar eldri búðir,
sje frá 1730 fram til síðustu aldamóta.
II.
Astandið1 í Hólaskóla,
sagt af þeim, sem kom þangað 1787 og útskrifaðist 1792.
Árið 1786 voru piltar 9 í skóla, bóluárið; þá var Haldór
Hjálmarsson rector, en konrector var Jón Diabolus, sem dó prest-
ur á Barði. Eptir það fjölguðu þeir smánsaman (!) og voru orðnir
40 1792. Olmusa var þar heil 20 rbd. og 1 króna = 64 skl.;
piltar voru allir komnir á Mikaelsmessu, áttu frí dagin eptir,
en annan dag eptir var skólin settur af rector með latínskri ræðu
og latínskum saung, nl. te deum laudamus á eptir; veni sancte spi-
ritus á undan. Allir sunnudagar og mánudagar vorufríir; bænir voru
haldnar kveld og morgun; á morgna var látin birting ráða; rektor
hringdi tilbæna; sína vikuna las hvur kafla úr bibljunni og bæn á
eptir; þegar morgunagenda voru búin, var haldin saungur í kirkju
kvöld og morgna; þá voru sungnir kvöld og morgunsálmar og
lesin Davíðs Saltari; að því búnu borðuðu menn úr skrínum sínum
sem þeir keiptu fyrir ölmusu sína, sem þeir feingu á staðnum,
korn, fisk, og smjör; hvur piltur fjekk ekki meira en 12 fjórðunga
1) Eptir lausu blaði, er átt hefir Steingrímur byskup Jónsson. Bjett-
rituninni er haldið óbreyttri.