Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Blaðsíða 15
15
skjóla, er tré er sett í lögg ók teTcr öðru megin á þröm, tólf þuml-
unga meðalmanni í naglsrótum.
Auðsjeð er, að hjer er átt við alkunna mælingaraðferð, sem
ekki þurfti nánari skíringar, og virðist mega hugsa sjer hana á
þessa leið: Maður leggur annan þumalfingur sinn, t. d. hinn hægri,
á flatan kvarðann, rjett við annan endann á honum, svo að ekkert
standi út af; síðan leggur maður vinstri þumalfingurinn á kvarðann
á misvixl við hinn þjett upp að honum, þannig að naglsræturnar
standist á — þá eru komnir tveir þumlungar — þá færir maður
hægri þumalfingurinn ifir firir hinn vinstri og leggur hann við hlið-
ina á honum á sama hátt og áður, — það er hinn þriðji þumlung-
ur — færir síðan altaf til skiftis einn þumalfingur ifir firir annan,
svo oft sem vill, og telur um leið.1)
Hjer er um lítið kerald að ræða, sem haft er firir eining lagar-
máls, og er því líklegt, að lengdin, 12 þumlungar frá lögg keralds-
ins upp á barminn hinumegin, sje einmitt jöfn hinu forna feti (eða
spönn), því að víðast hvar eru þess konar mælikeröld að einhverju
leiti miðuð við fetið. I Svíþjóð var til alveg sams konar mæliker-
ald, sem nefndist tolfmynning, af því að fjarlægðin frá lögginni
öðru megin upp á barminn hinumegin átti að vera tólf þumlungar.
Orðið er dregið af tólf — 12 og mund, sem getur í sænsku þítt breidd
naglarinnar á þumalfingri eða þumlung.2)
Ef það er rjett, að tólf þumlungar hafi verið taldir í feti, þá
verða 24 þumlungar í alin, sem var helmingi lengri.
Að menn hafi, þegar svo bar undir, mælt álnir sínar í þuml-
ungatali, sjest og á Grág. Sthb. 289. bls. Þar stendur:
Tvíeln (o: tveggja álna breið) skulu vaðmál, ók skulu rétt boðin,
ef fingrum gegna á breidd, ók sé kostgóð.
Hjer tákna fngr án efa sjerstaklega þumalfingurna (sbr. áður).
Kaupandi vaðmálsins mælir á þumalfingrum sínum og gengur úr
skugga um, að það sje tvær álnir á breidd. Af þessu er ljóst, að
ákveðin þumlungatala er í alin.
Gerum, að 24 þumlungar fornir hafi verið í alin, og mælum á
þumalfingrum vorum, sem áður er sagt, 24 þumlunga á málbandi
*) Að þessi mælingar aðferð hafi verið tíðkuð, þegar stutt var mælt, má ráða
af Grrág. Sthb. 289. bls.: Tvieln skulu vaðtnál, ok skulu rétt boðin, ef fingrnm
gegna á breidd, ok sé kostgóð.
*) Hans Hildebrand, Mátt och vigt i Sverige, í Historisk tidskrift (svensk) V
208. og 203. bls. — Þess skal getið, að eftir rannsóknum mínum, sem að visu eru
ekki enn til likta leiddar, virðist katlamálsskjóla hafa tekið rjettar 10 merkur fornar,
mældar, eða rúma 3 lítra.