Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 21

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Page 21
21 fjórðungi of hátt, svo að ekki var von að mennirnir vildu gjalda. Loks varð það að sætt, að þeir biskup guldu »6 hundruð vaðmála« sem gerir 36 álnir (= 6 aura) á mann, eða tæpan helming hins lög- lega gjalds, ef hjer er átt við álnir, og virðist það sennilegt, þar sem mennirnir bjuggust við að greiða annað eins, eða rúmlega það, í Noregi. En ef átt er við aura, koma 36 aurar á mann, sem verð- ur nær þrefalt við rjetta iandaura. Af þessum stað má ráða að hundrað vaðmála sje alstaðar, þar sem það kemur firir, = hundrað á 1 n i r vaðmála, en það kemur íirir á þessum stöðum: Sturl. Oxf. I 13., 214., 218. og 346. bls. II 65. bls. Af þvi að vara er haft í sömu merkingu og vaftmál (t. d. Sturl. Oxf. II 65. bls.) má ráða, að hundrað vöru, þar sem það kemur firir, sje = hundrað vaðmála, og að átt sje við álnir á þessum stöðum: Sturl. Oxf. I 111. og 159. bls. Sturl. Oxf. I 215. bls. segir, að Guðmundur biskup bauð firir legorðsmál Skærings klerks »6 hundruð«, »ok Tcallar pat meirr enn tvá lögréttu«. Einn lögréttr var 6 merkr lögaura = 48 sex álna aurar = 2 hundruð (2X120) álna vaðmála og 48 álnir að auk.1) Tveir lögréttir verða þá 4 hundruð (4X120) álna vaðmála og 96 álnir að auk. Ef hjer á þessum stað er átt við álnir, kemur það alveg heim, að »6‘ hundruð« er meira enn tveir lögrjettir, því að þá verður þetta rjettur hálfur lögrjettur (1 hundrað 24 álnir) um fram tvo lögrjettu. Enn ef átt er við þriggja álna aura verða 6 hundruð sama sem 7 l/a lögrjettir, og orð biskups helber vitleisa. Þegar Hafliði Másson varð firir áverka á alþingi, gerði hann sjer af Þorgilsi Oddasini »80 hundraða þriggja álna aura« (Sturl. Oxf. I 38. bls.) firir áverkann.2) Siðar, þegar Sturla Þórðarson (hinn gamli) varð firir áverka og var selt sjálfdæmi, kvaðst hann mundu breita eftir dæmi Hafliða Mássonar, er hann fjekk vansa í sárafari, og gerði sjer »tvö hundruð hundraða« firir áverkann. Þetta verður ekki skilið öðru vísi enn svo, að Sturla hafi gert sjer jafnháa upphæð og Hafiiði, enda kemur það alveg heim, að 80 hundruð 3 álna aura er sama sem »tvö hundruð hundraða«, ef síðari ') Y. Finsen, Orðasafn við Grrág. undir réttr. *) Hjer skal jeg taka það fram, að það er misskilningur, hjá dr. V. G., er hann segir (German. ahhdl. 542.-543. bls.), að þeir „átta tigir hundraðaj sem Þorgils þá af vinum sínum, áður hann kæmi heim af þingi (Sturl. Oxf. I 39. bls.), sje sama upphæðin og Hafliði hafði gert á þinginu, og hafi nægt til að gjalda allar áverka- bæturnar. Þvert á móti segir á sama stað, að margir hafi eftir það hoðið Þorgilsi til sín og leist hann út með stórgjöfum, og að víða hafi verið farið að krefja fjár um Vestfirðingafjórðung, áður bæturnar vóru allar greiddar. Af þessu leiðir, að „átta tigir hundraðalí á þessum stað hlítur að tákna 80 hundruð (80X120) álna, Og er það rjettur þriðjungur hótanna allra.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.