Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Qupperneq 26
26
hann hafi verið þumalfingur eða forn þumlungur firir hverja
alin. Það sjest og á því, að ekki varðaði, þó að menn hefðu rang-
an (of stuttan) kvarða, nema það munaði alin á hverjum 20 álnum.1)
Kaupbætirinn bætti það nokkurn veginn upp, ef hann var þuml-
ungur firir alin. Á þeim 4 hundruðum (= 480) álna vaðmála verð-
ur kaupbætirinn þvi 480 fornir þumlungar, og kemur það alveg
heim, að það verða rjettar 20 álnir, ef 24 þumlungar eru í fornri
alin. Höfundur þessarar greinar bætir við þessum 20 álnum til að
sína, að hann eigi við ríflega mœlda alin, eða þumalalin. Það getur
og varla verið tilviljun em, að fáum línum neðar segir sama bókin,
Konungsbók, að vararfeldur skuli vera fjögurra þumalálna langur,
og er þetta eini staðurinn, þar sem orðið þumalöln kemur firir í ís-
lenskum ritum. Af þessum tveim stöðum virðist mega ráða, að
þumalalin (-öln) sje = forn alin aukin einum fornum þumlungi (—þum-
all -f- alin, sbr. áður.) Og firri staðurinn sínir glögglega að það sje
rjett, sem áður eru síndar líkur til:
1. að kaupbætir í vaðmálsmælingum var 1 forn þumlungur firir
hverja alin, áður en stikulögin gengu í gildi, og
2. að 24 þumlungar vóru taldir í fornri alin.
Ef vjer drögum frá lengd hinnar fornu óauknu álnar, sem var
49,143 sentímtr. = 18,79 d. þml.
lengd eins forns þml., sem var 2,065 — = 0,79 - —
þá kemur út............... 47,078 sentímtr. = 18 d. þml.
og er þetta hjer um bil jafnt lengd framhandlegs á meðalmanni frá
olnboga fram á langafingurs góm (öln i náttúrlegri merkingu). Þetta
bendir til, að munur sá, sem er á hinni fornu alin og náttúrlegu
framhandlegs máli, stafi frá uppbót þeirri, sem gefin var í mæling-
um, þumlungur firir hverja öln. Hin forna alin er þá í rauninni,
eftir uppruna sínura, þumlungi aukin móts við hina eldri náttúr-
legu alin (öln). Enn siðan, þegar þessi aukna alin hafði náð festu
sem lögalin og verið mörkuð á kirkjuvegg á Þingvelli, tóku menn
einnig að heimta hana bætta upp að fornum sið með þumlungi firir
hverja alin, og varð það til þess, að lögalin þumlungi aukin var
kölluð þumalöln (-álin).
Að lokum set eg hjer ifirlit ifir hið islenska áluamál frá elstu
tímum fram til vorra daga:
1. Hin elsta alin, ef til vill eldri enn bigging íslands, var hin
*) Grág. Kb. II 169. bls., sbr. 249. bls. í AM. 347 fol. Sthb. 262. bls.