Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Page 3

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Page 3
Það var snemma í júnímánuði 1920, nokkrum dögum eptir að eg var kominn heim úr veturvist í Höfn, að eg var hringdur upp í síma af séra Gruðmundi prófasti Helgasyni, fyrrum í Reykholti, er þá var staddur hér í bænum, en átti heima austur á Selfossi. Sagði hann mér, að hann væri ráðinn af jarðayfirmatsnefndinni með samþykki stjórnarráðsins til þess að athuga og lagfæra íslenzk bæjaheiti, og gera tillögur um þær endurbætur til yfirmatsnefndar- innar, svo að þær gætu orðið teknar til greina við prentun nýja jarðamatsins, en þetta mundi útheimta allmikla rannsókn í skjölum og öðrum gömlum heimildum, er hann kvaðst ekki einfær um að framkvæma, og þessvegna leitaði hann til min að ganga í verk þetta með sér, með því að sá, er lofað hafði aðstoð sinni til þess, dr. Jón Þorkelsson þjóðskjalavörður, væri sigldur til Hafnar, og kæmi ekki aptur fyr en að hausti, en tillögurnar yrðu að vera komnar til yfirmatsnefndarinnar, er hún tæki til starfa með haust- inu. Eg tók þessari málaleitun mjög þurlega, kvaðst ætla að nógur tími væri til að byrja á þessu, er dr. J. Þ. kæmi heim, auk þess, sem það væri ekki venja mín að hrifsa undir mig verk þau, er öðrum væru ætluð, eða láta hafa mig fyrir varaskeifu. Við það sleit samtalinu þá, en síðar um daginn hitti séra Guðmundur mig í Þjóðskjalasafninu, og skoraði þá fastlega á mig að takast verk þetta á hendur, með því að það þyldi enga bið, en eg færðist enn undan, kvaðst aðeins skyldi líta á og lesa yfir það sem hann ritaði um þetta efni og benda honum á þýðingarmestu heimildirnar. En þetta kvaðst hann alls ekki gera sig ánægðan með, eg yrði að vinna sjálfur að verkinu, ella yrði það óunnið, og væri það þá mér að kenna. Eg lét þá loks tilleiðast að ráðast í verk þetta með honum, heldur en að ekkert yrði úr því, þá er vinda þurfti svo bráðan bug að þessu, að sögn séra Guðmundar, en báðum okkur var ljóst, að full nauðsyn væri á þessu verki Eg hef skýrt svo nákvæmlega frá tildrögum þess, að eg varð við þetta riðinn, til þess að sýna, að 1*
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.