Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Side 5

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Side 5
5 alltsaman yfirmatsnefndinni í októbermánuði (1920). Var það allstór syrpa í arkarbroti, öll með hendi séra Guðmundar, og mun hún geymd í stjórnarráðinu. Fátt heyrðum við um það, hvernig nefndin tók þess- um tillögum okkar, en það þóttist eg vita, enda sagði séra Guð- mundur mér það einnig, að meiri hluti hennar (Magnús Gíslason, nú sýslumaður, Ágúst dbr.m. Helgason og Hjörtur alþm. Snorrason) mundu ætla að taka þær að mestu eða öllu leyti til greina. Veturinn 1920—1921 var séra Guðmundur austur á Selfossi. Spurðist hann þá opt fyrir í bréfum til min, hvað nefndarstörfunum miðaði áleiðis, og hvenær byrjað yrði á prentun jarðabókarinnar, en eg gat engar upplýsingar um það gefið. Höfðum við áður talað um, að nauðsynlegt væri, að prentað yrði ágrip af tillögum okkar til yfirmatsnefndarinnar, sem yrði látiðfylgja jarðabókinni, sem leiðar- vísir fyrir þá, er vildu vita á hverju breytingarnar á bæjanöfnunum væru byggðar. Á útmánuðum 1921 ritaði séra Guðmundur mér og mæltist til, að eg semdi ágrip þetta, er hann taldi víst, að prentað yrði. Eg fór þá að vinna að þessu eptir uppköstum mínum, er eg hafði geymt, en bætti þó ýmsum skýringum við, er eg hafði síðar athugað nánar eptir ýmsum heimildum, sérstaklega visitazíubókum Brynjólfs biskups o. fl En að öðru leyti var öllu smávegis sleppt úr tillögum þeim, er við höfðum sent stjórnarráðinu, t. d. um réttritun bæja- nafna o. m. fl., og aðalefninu þjappað sem fastast saman í sem styztu máli, og var töluvert vandhæfi á því að draga svo saman þessa rannsókn á bæjanöfnunum, að engu eða sem fæstu af atriði væri sleppt úr þessu yfirliti. Lauk eg verki þessu snemma í maí (1921). Skömmu síðar kom séra Guðmundur hingað til bæjarins, og fékk þá þessa ritsmíð mina til yfirlesturs. Líkaði honum hún vel og gerðum við litlar breytingar á henni. Við bjuggumst við, að jarða- bókin yrði prentuð þá um sumarið, og að yfirmatsnefndin eða þeir, sem látnir væru sjá um útgáfuna, mundu láta annanhvorn okkar eða báða lesa eina próförk. En þetta fór allt á aðra leið, því að þá er byrjað var á prentun bókarinnar næsta vetur, var hvorki til þess mælzt, að við lítum þar á nokkra próförk, eða mér nokkur vísbending gerð um afhending ágrips míns tíl prentunar, og var þó bæði stjórnarráði og yfirmatsnefnd kunnugt um, að það var til taks, en mér datt ekki í hug að afhenda það á annan hátt, til þess að láta stinga því undir stól óprentuðu. En bæði eg og séra Guðmund- ur þóttumst hlera það, að enginn slíkur leiðarvísir mundi prentaður verða í sambandi við jarðabókina. Þá er Fasteignabókin svonefnda var loks fullprentuð siðari hluta vetrar 1922, var þess auðvitað hvergi getið, að við séra Guð-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.