Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Qupperneq 5
5
alltsaman yfirmatsnefndinni í októbermánuði (1920). Var það allstór
syrpa í arkarbroti, öll með hendi séra Guðmundar, og mun hún geymd
í stjórnarráðinu. Fátt heyrðum við um það, hvernig nefndin tók þess-
um tillögum okkar, en það þóttist eg vita, enda sagði séra Guð-
mundur mér það einnig, að meiri hluti hennar (Magnús Gíslason, nú
sýslumaður, Ágúst dbr.m. Helgason og Hjörtur alþm. Snorrason)
mundu ætla að taka þær að mestu eða öllu leyti til greina.
Veturinn 1920—1921 var séra Guðmundur austur á Selfossi.
Spurðist hann þá opt fyrir í bréfum til min, hvað nefndarstörfunum
miðaði áleiðis, og hvenær byrjað yrði á prentun jarðabókarinnar,
en eg gat engar upplýsingar um það gefið. Höfðum við áður talað
um, að nauðsynlegt væri, að prentað yrði ágrip af tillögum okkar
til yfirmatsnefndarinnar, sem yrði látiðfylgja jarðabókinni, sem leiðar-
vísir fyrir þá, er vildu vita á hverju breytingarnar á bæjanöfnunum
væru byggðar. Á útmánuðum 1921 ritaði séra Guðmundur mér og
mæltist til, að eg semdi ágrip þetta, er hann taldi víst, að prentað yrði.
Eg fór þá að vinna að þessu eptir uppköstum mínum, er eg hafði
geymt, en bætti þó ýmsum skýringum við, er eg hafði síðar athugað
nánar eptir ýmsum heimildum, sérstaklega visitazíubókum Brynjólfs
biskups o. fl En að öðru leyti var öllu smávegis sleppt úr tillögum
þeim, er við höfðum sent stjórnarráðinu, t. d. um réttritun bæja-
nafna o. m. fl., og aðalefninu þjappað sem fastast saman í sem
styztu máli, og var töluvert vandhæfi á því að draga svo saman
þessa rannsókn á bæjanöfnunum, að engu eða sem fæstu af atriði væri
sleppt úr þessu yfirliti. Lauk eg verki þessu snemma í maí (1921).
Skömmu síðar kom séra Guðmundur hingað til bæjarins, og fékk
þá þessa ritsmíð mina til yfirlesturs. Líkaði honum hún vel og
gerðum við litlar breytingar á henni. Við bjuggumst við, að jarða-
bókin yrði prentuð þá um sumarið, og að yfirmatsnefndin eða þeir,
sem látnir væru sjá um útgáfuna, mundu láta annanhvorn okkar
eða báða lesa eina próförk. En þetta fór allt á aðra leið, því að þá
er byrjað var á prentun bókarinnar næsta vetur, var hvorki til
þess mælzt, að við lítum þar á nokkra próförk, eða mér nokkur
vísbending gerð um afhending ágrips míns tíl prentunar, og var þó
bæði stjórnarráði og yfirmatsnefnd kunnugt um, að það var til taks,
en mér datt ekki í hug að afhenda það á annan hátt, til þess að
láta stinga því undir stól óprentuðu. En bæði eg og séra Guðmund-
ur þóttumst hlera það, að enginn slíkur leiðarvísir mundi prentaður
verða í sambandi við jarðabókina.
Þá er Fasteignabókin svonefnda var loks fullprentuð siðari
hluta vetrar 1922, var þess auðvitað hvergi getið, að við séra Guð-