Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Síða 34
34
Kjósarhreppur.
Skorhagi [SkorrahagiJ. Líkur eru fyrir, að jörðin hafi heitið
Skorrahagi, sbr. t. d. Skorholt (Skorraholt) í Borgaríirði, Skoradal-
ur (Skorradalur) o. fl.
Laxárnes. Svo heitir jörðin réttu nafni, sbr. Fbrs. V, VIII o. fi.
heimildir, en Laxanes, sem hún optast hefur nefnd verið á síðari
tímum, er rangnefni.
Hœkingsdalur [Hœkjudalur] Hækjudalur er jörðin nefnd í landa-
merkjaskjali Vindáss í Kjós c. 1270 (Fbrs. II, 81—82), og er það
líklega upphaflega heitið, en Hækingsdalur hefur jörðin nú lengi
nefnd verið.
Fremri Háls. Matsbókin nefnir jörðina Efri Háls, en það nafn
flnnst ekki annarsstaðar, og mun að eins myndað i líkingu við
Neðra Háls, en Fremri Háls hefur þessi jörð ávallt heitið, og virðist
ekki ástæða til að breyta um það.
Mýdalur [Mýrdalur]. Mýrdalur heitir jörðin í ævagömlum mál-
daga Saurbæjarkirkju á Kjalarnesi frá c. 1220 (Fbrs. I), en Mýdalur
í máldaga frá c. 1269 (Fbrs. II, 64)’, Vilkinsmáld. og síðan optast-
nær, þar á meðal í A. M. Þykir því rétt að halda því nafni, þótt
Mýrdalur sé eldra.
Eyri [Hvalfjarðareyri]. A. M. getur þess, að Eyri sé nefnd Hval-
fjarðareyri.
Hurðarbak er rétta nafnið og ekkert annað á þessari jörð og
öllum öðrum með sama nafni (alls 6: í Flóa, í Kjós, Svínadal í
Borgarfirði, Rcykholtsdal, Vesturhópi og Asum í Húnavatnssýslu), en
F. hefur sett nafnið Urðarbak(!) sem sviganafn og eldra nafn við
allar þessar jarðir, nema Hurðarbak í Flóa, hvers sem það hefur átt
að gjalda að verða útundan með Urðarbakið sem fornnefni, sem er
hrein og bein hlægileg vitleysa, eflaust mynduð af einhverjum »spek-
ing«, sem ekki hefur skilið merkinguna í Hurðarbak, sem þó er
augljós, sem heiti á bæ, sem svo er í sveit komið, að hann sést ó-
gerla frá öðrum bæjum, liggur á bak við háls eða hæð, sem skyggir
á hann, og sést þetta einna greinilegast á Hurðarbaki í Reykholts-
dal, en svo mun vera einnig um hin Hurðarbökin að meiru eða
minna leyti. Það er því alveg óhætt að stryka öll Urðarbökin al-
staðar út úr F., sem fáránlega fjarstæðu.
1) Þessi tilvitnun á einmitt við Mýdal i Kjós, en ekki Miðdal í Mosfellssveit
(skr. registur við FbrsúII).