Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Qupperneq 52
52
Norður-ísafjarðarsýsla.
Hólshreppur.
Mýdalur. Mýdalur í Fbrs. IV (Vilkinsmáld) VII og VIII og hjá
A. M. sem aðalnafn, en Miðdalur í Jb. 1696 og hjá A, M. sem auka-
nafn. Mýdalur er vafalaust rétta nafnið.
Tunga (Þjóðólfstunga), Þjóðólfstunga finnst ekki í gömlum heim-
ildum og ekki fyr en um miðbik næstl. aldar (um 1850), nefnd svo í
1861 og prestakalisbókum, og einnig í matsbókinni, áður jafnan
Tunga, sbr. Fbrs. IV (1449) Jb. 1696, A M. og ýmsar aðrar heim-
ildir. Þjóðólfstungu virðist þó mega halda sem varanafni.
Súðavíkurhreppur.
Folafótur (Fótur), Fótur nefnist jörðin I Fbrs. V (1458), einnig í
Jb. 1696, og A. M. telur hana almennt svo nefnda, en aðalnafnið
sé Folafótur, og svo er jörðin nefnd í 1861 og matsbókinni, en John-
sen hefur bæði nöfnin, Fótur sem aðalnafn. Ilestur er fjall og bær
samnefndur þar upp af tanganum, milli Hestfjarðar og Skötufjarðar
(hestfætinum), sem í fornöld hét Folafótur, sbr. Ln. Á þessum tanga
stendur bærinn Folafótur, sem er hið upphaflega og fulla nafn hans.
Ogurhreppur.
Strandsel (flt.). 1861 hefur sem aðalnafn Strandseljar, en ekki
sýnist ástæða til að halda þeirii mynd. Reglan sú, að þá er einsat-
kvæðis hvorugkynsorð eru höfð sem bæjanöfn í fleirtölu, þá fá þau
endinguna ar, en það gildir ekki um samsett nöfn. Þannig er sagt
Andrésfjós, Miðhús, en ekki Andrésfjósar og Miðhúsar, þótt sagt Bé
Fjósar, Nesjar, Giljar o. s. frv.
Blámýrar [Blámýri]. I Hávarssögu ísfirðings er Blámýrr =
Blámýri, en Blámýrar í Fbrs. VII, ögursvisit. Br. Sv. 1639, Jb. 1696,
A. M. o. s. frv. jafnan síðan, svo að ekki þykir ástæða til að taka
upp aptur eintölumyndina, þótt hún sé upphaflega nafnið.
Birnustaðir. Svo í Fbrs. V (frumrit á skinni frá 1467) og VII,
einnig í Johnsen, 1861 og matsbókinni; er vafalaust rétta myndin,
þótt Jb. 1696 og A. M. hafi Birnestaðir.
Reykjarfjarðarhreppur.
Kelda [Jökulslcelda]. Jökulskelda í Fóstbræðrasögu og Fbrs. VI
(1458). í Fbrs. IV (Vilkinsmáld.) er nefndur Jökulkelduskógur, eign
Vatnsfjarðarkirkju. í Fbrs. VI (þrisvar) Jb. 1696, A. M. og síðari