Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Page 53
53
heimildum að eins Kelda, sem er vafalaust sama jörðin sem hin
forna Jökulskelda eða Jökulkelda.
Hdlshús. Svo er jörðin réttnefnd, sbr. Fbrs. II, III, IV, Jb. 1696,
A. M. o. fl. Hólshús í 1861 er rangt, ef til vill ekki annað en
prentvilla.
Nauteyrarhreppur.
Qervidalur. Svo í Grettissögu og Fóstbræðrasögu. Aðrar myndir
eru Gjörvi- (í rekaskrá Vatnsfjarðarkirkju 1327 (Fbrs. II) og Fbrs.
VII. Gjörfi- og Gjörfu- í Fbrs. VIII, síðari myndin einnig í Vatnsfj -
visit. Br. Sv. 1639 og Jb. 1696, Gjörvu- í A. M. Gjörfl- er einnig i
Johnsen, 1861 og matsbókinni. Af öllum þessum myndum er enginn
vafi á, að Gervidalur eða Gjörfidalur er hin réttasta; gjörvi = gervi,
hertygi, sbr. görvibúr = vopnabúr.
Lágadalur. Svo í Fbrs VII (1458), en í síðari heimildum jafnan
Lágidalur.
Amúli (Armúli). Ámúli í Fbrs. V., Visit. Br. Sv. (Kirkjuból I
Langadal 1639), Jb. 1696 og A. M. Johnsen hefur bæði nöfnin, en
1861 og matsbókin að eins Ármúla, og svo mun sagt nú, en Ámúli
er upprunalegra. Ásmúli í F. eflaust prentvilla.
Snæfjallahreppur.
Dyrðilmýri. Svo i Fóstbræðrasögu. A. M. hefur Tyrðilmýri og
Mýri, Jb. 1696 Tirðilmýri og á sama hátt 1861 og matsbókin. Tirðil-
og Tyrðil- framburðarafbökun úr Dyrðii, sem vafalaust er rétta
myndin.
Grunnavíkurhreppur.
Grunnavik (Staður í GrunnavíTc). Grunnavík hét kirkjustaðurinn
að fornu, samkv. gömlu kirknaskránni frá c. 1200, sbr. einnig Sturl.
og heitir svo enn í Vilkinsmáldaga (Fbrs. IV), sbr. Grunnavíkurþing
í sama bindi og Grunnavíkurkirkjusókn í Fbrs. X. í visitazíu Brynj-
ólfs biskups 1643 nefnir hann staðinn Grunnavík. Þykir því rétt að
hafa nafn þetta sem aðalnafn á Grunnavíkurstað, enda er í hinum
almennu manntölum 1850, 1860, 1870, 1880 og 1890 ávallt nefnd
Grunnavíkursókn, en ekki Staðarsókn. í Grunnavík (á Stað) var
fæddur (1705) Jón gamli 01afsson(f 1779), er kallaði sig Jón frá Grunna-
vík eða Grunnvíking (J. 01. Grv.), sem flestir lærðir menn munu
kannast við.
Dynjandi (kvk) í Fbrs. IX er getið um >jörðina Dynjandi*
í Jökulfjörðum, sbr. Dynjandisþingsókn í jarðaregistri ísafjarðarsýslu