Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Qupperneq 59
59
upphaflega nafnið, þótt ekki verði um það sagt með vissu, líklegra,
að Kötlu- breyttist í Kollu- í framburði heldur en Kollu- í Kötlu.
Vtri Torfustaðahreppur.
Bretalœkur. Svo í Sturl. þrisvar, einnig í Fbrs. II., III., V., IX,
þó sumstaðar Bretu- eða Brota-; Bredda- í Jb. 1696 og A. M, síðar
á 18. öld Breddu-, og loks til fulls afbakað í Brekkulæk (Johnsen,
1861 og matsbókin) og ætti sú afbökun nú að vera úr sögunni.
Urriðaá. Aurriðaá í matsbókinni sýnist óþarflega fornlegt. Jb.
1696 og A. M., svo að ekki só fleira nefnt, láta sér nægja að kalla
jörðina blátt áfram Urriðaá.
Hlið (Huppahlið). Nafnið Huppahlíð hef eg fyrst fundið í presta-
kallsbókum Staðarbakka 1845.
Reynihólar. Svo í Pétursmáldaga 1394 (Fbrs. III.) og Olafsmál-
daga (Fbrs. V.) í Auðunnarmáld. 1318 Reynshólar (Reynhólar í
Jónsmáld. 1260), í Fbrs. IX. Rennihólar, og í Jb. 1696 og A. M.
Reinhólar, einnig í manntalsbók Húnavatnssýslu c 1740 og í mats-
bókinni, en í Johnsen og 1861 Reynihólar, sem vafalaust er rétta
nafnið.
Sveigðisstaðir (Sveðjustaðir), Sveðjustaðir í Jb. 1696, A. M., John-
sen og 1861. A. M. getur þess þó, að almennt sé sagt Sveiju-
staðir, sem minnir á Sveigisstaði í utanáskript bréfs í Fbrs. VI.
(1478), en i sjálfu bréfinu eru Sveiðju- og Sveiju-, og Svedi- í Fbrs.
IX. (elzta hluta Sigurðarregisturs 1525). í Brb. Guðbr. bisk. 2. h.
og jarðaskýrslu c 1592 er jörðin nefnd Sveigisstaðir, og gæti það
verið rétt, en sennilegra hygg eg samt eptir rithætti eldri heimild-
anna, þá er allt er borið saman, að jörðin hafl upprunalega heitið
Sveigðisstaðir. Sveigðir var tiðara nafn en Sveigir, en Svegðir
kemur að eins fyrir einu sinni (Lind), en allt er þetta sama nafnið,
og skiptir því ekki miklu, hvert tekið er. Sakir þess, að Sveðju-
staðir, þótt afbökun sé að sjálfsögðu, er þó allgamalt heiti á jörð-
inni þykir rétt að halda því sem hálfógildu varanafni.
Útiblígsstaðir. Útibliksstaðir í Fbrs. V. (þrisvar), einnig hjá A. M.,
Útibleiksstaðir í Jb. 1696 og siðar víða (Johnsen, 1861 og matsbók),
en það er auðvitað afbökun En Útibliks- mun vera í staðinn fyrir
Útiblígs-, að eins lítil framburðarbreyting, sbr. nánar um þetta aths.
við LambabJgsstaði í Austur-Skaptafellssýslu. Eptir að þessari niður-
stöðu var slegið fastri fann eg af hendingu einmitt nafnið Utiblígsstað-
ir í handriti eptir Daða Níelsson hinn fróða (fréttasamtíningur frá
1837 í ísl. Bmfél. 671 8vo) og hika því ekki við að taka það nafn upp
í stað hinna afbökuðu (Útibliks- og Útibleiks-). En hvort rita eigi