Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1923, Síða 97
Skýrsla
I Aðalfundur hins íslenzka Fornleifafjelags 1922.
Samkvæmt auglýsingu í dagblöðum og sjerstöku fundarboði til
allra fjelagsmanna í Reykjavík var aðalfundur Fornleifafjelagsins
1922 haldinn mánudaginn 16. dag októbermánaðar, kl. 5 síðdegis,
í le8trarsal Þjóðskjalasafnsins. Formaður fjelagsins minntist tveggja
látinna fjelagsmanna, Gfuðmundar prófasts Helgasonar og Magnúsar
prófasts Andrjessonar; tóku fundarmenn undir það með því að standa
upp úr sætum sinum.
Þá skýrði formaður frá framkvæmdum fjelagsins á umliðnu
og yfirstandandi ári, og lagði fram endurskoðaðan reikning yfir
tekjur og gjöld fjelagsins árið 1921, sem prentaður er hjer á eptir.
Átti fjelagið í árslok 2800,00 kr. í verðbrjefum og rúmar 1800 kr.
í sparisjóði í Landsbankanum; en það fje handbært, sem fjelagið átti
við árslok, og ríkissjóðsstyrkur fjelagsins á yfirstandandi ári, 1922, kvað
hann væri nú hvorttveggja eytt til útgáfu árbókarinnar fyrir 1921—1922,
er út kom síðast liðið vor. — Sbr. reikninginn fyrir 1922, sem einnig
er prentaður hjer á eptir.
Loks skýrði formaður frá því, að hann hefði samkvæmt sam-
þykt siðasta aðalfundar sókt til Alþingis um aukinn styrk til fjelags-
ms; sbr. brjef formanns, dags. 27. febr. 1922, sem er prentað hjer á
eptir. Kvað hann umsóknina engan árangur hafa borið. — Fundur-
inn fól formanni að sækja á ný um styrk til örnefnarannsóknanna.
í stað hins fráfallna fulltrúa, Guðmundar prófasts Helgasonar,
var kosinn I fulltrúaráðið ritari fjelagsins, Ólafur prófessor Lárusson,
til aðalfundar 1925.
Fleira var ekki aðhafst. Eptir að fundargerð hafði verið sam-
þykt og undirrituð Bagði formaður fundi slitið.
7