Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Síða 20
22
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ekki skáldsagnapersóna, ekki staðgengill einhvers annars manns með
með öðru heiti, og vér trúum því, að hann sé í höfuðatriðum tengd-
ur sögu íslands og Grænlands með þeim hætti, sem fornritin
tjá oss.
Eiríks saga rauða er fleyguð, innskotin sýnilega í hana komin í
því skyni að gera hana að meiri sögu, lystilegri til frásagnar, þeim
eftirsóknarverðari til dægrastyttingar og skemmtanar, sem á hlýddu.
Fræðimönnum ber nú orðið saman um, að Grænlendinga saga, sem
fjallar að talsverðu leyti um sömu menn og atburði og Eiríks saga,
sé eldri og upprunalegri.1 Sameiginlegt er það báðum þessum sög-
um, að þær greina frá fslendingum og athöfnum þeirra í annarri
heimsálfu. Sú er ástæðan til þess, að þeim hefur verið veitt meiri
athygli en öðrum íslenzkum fornritum og um engar íslendinga-
sögur hefur verið ritað jafnmikið og þær. — En þrátt fyrir það
greinir menn á um skilning á ýmsum atriðum. Sumir ætla það
veruleika, sem aðrir telja skáldskap. Allir eru þó sammála um megin-
kjarnann, að þeir Norðurlandabúar, sem fundu Grænland og settust
þar að, hafi komið frá fslandi, og vitanlega var skipið far-
kosturinn. Um hann verður fjallað í þessari ritgerð, og þess vegna
kann að vera heppilegt, að vér stöldrum við á Helgafelli og lítum
þaðan sögusviðið, inn til Dala, um eyjar, út um fjörð, á opið haf.
Á þeim slóðum réðust að miklu leyti þau örlög Eiríks rauða, að hann
varð foringi landnemaflokksins, sem fór með honum til Grænlands.
II.
Sumarið 1243 mátti líta af Helgafelli mikla siglingu suður yfir
Breiðafjörð, alls 30 skip. Þau komu af Vestfjörðum, og höfðu sum
farið fyrir öll annes vestra, um rastirnar út af Horni, Straumnesi
og Látrabjargi, og linntu ekki ferð fyrr en undir Hólmláturseyju,
innst í Breiðafirði. Áhafnir þessara skipa voru hátt á fjórða hundrað
manns. Um þennan flota vitum vér ekki annað með vissu en það,
að í honum var ein skúta og ein ferja,2 en að öðru leyti mun þarna
hafa verið um að ræða fiski- og farmabáta.
Eitt sinn áður hafði mátt sjá af Helgafelli stóran flota, en hann
1 Jón Jóhannesson: Aldur Grænlendinga sögu. Nordæla, Rvik 1956, bls. 149—158.
2 Sturlunga saga, Rvík 1946, II, bls. 31—32.