Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1964, Qupperneq 146
148
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
anlega komast í gagnið á næsta ári. Næsta safn, sem styrks þarf
að njóta, er Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum
í Hrútafirði, en fleiri eru þau byggðasöfn, sem á það stig eru að
komast, að styrkhæf séu, og þarf að vinna að því á næstu árum að
ríkið komi til móts við þau, eins og lög mæla fyrir.
Fornleifarannsóknir og fornminjavarzla.
Haldið var áfram uppgrefti þeim á Reyðarfelli hjá Húsafelli í
Borgarfirði, sem hófst 1960. Þorkell Grímsson, sem fyrir þessum
uppgrefti stendur, var á staðnum 10. ág. — 13. sept. og með honum
allan tímann Gunnar Karlsson stúdent, en af safnsins hálfu voru
þar einnig Gísli Gestsson lengst af tímans og Þór Magnússon nokkra
daga. Margt merkilegt hefur komið fram við þessar rannsóknir,
þótt nokkuð skorti á heildarmynd bæjarhúsanna. Uppgreftinum er
ekki enn lokið.
Allmikil rannsókn var gerð í Hvítárholti í Hrunamannahreppi.
Komu starfsmenn safnsins fyrst þangað hinn 13. júní, og skömmu
síðar hófst uppgröfturinn og stóð með allmiklum hléum fram undir
haust. Allan tímann voru við rannsóknirnar Þór Magnússon og
Guðmundur Jónsson á Kópsvatni, sem reyndist mikill áhugamaður
um rannsóknina, en Gísli Gestsson, Halldór Jónsson og Kristján
Eldjárn tóku þátt í rannsóknunum eftir því sem aðrar annir leyfðu.
Fullrannsakað var eitt lítið hús, sem talið er forn baðstofa, en
meira var þó grafið á öðrum stöðum á fornleifasvæðinu, og varð
rannsókninni ekki lokið. Öll merki benda til þess, að þarna sé um
að ræða bæjarstæði frá söguöld, og hefur ekki áður verið vitað um
byggð þarna. Fleiri staðir í Hrunamannahreppi voru skoðaðir, og
virðast sumir þeirra vera rannsóknarefni.
Dagana 29.—30. marz rannsakaði Gísli Gestsson fornmannsgröf
í Krossanesi hjá Akureyri, og aðstoðaði Steindór Steindórsson
menntaskólakennari við margt í sambandi við þann fund. Enn
fremur hélt Gísli áfram athugunum sínum á hinum forna þing-
stað hjá Búðafossi í Árnessýslu.
Þjóðminjavörður gerði undirbúningsathugun á þingstaðnum í
Þingey í Skjálfandafljóti (27. ágúst), meðal annars með tilliti til
fyrirhugaðs þjóðgarðs Þingeyinga þar. Enn fremur rannsakaði
hann með Þórhalli Vilmundarsyni prófessor svonefnda Silfurbrú
á Skarðsströnd og leit eftir ýmsum friðlýstum minjum í Dala- og
Barðastrandarsýslum dagana 6.—8. sept. Enn fremur fór hann,
ásamt öðrum starfmönnum safnsins, nokkrar ferðir um Reykja-