Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Síða 31
LÝSING MANNABEINA
35
Líkamshæðin, útreiknuð af lærleggja- og sköflungslengdum sam-
kvæmt töflum Trotter og Gleser (1952), er 160 sm eða í góðu meðal-
lagi miðað við konu í heiðni hér á landi. Stúlkan hefði eflaust komizt
í flokk hávaxinna, ef henni hefði enzt aldur til að taka út fullan
líkamsvöxt.
H 122. Beinagrind úr um 18 ára pilti. Fleygs- og hnakkabrjósk-
tengsl eru óbeingerð, en köst á útlimabeinum eru lengra á leið komin
með að gróa við en á H 121 og allir endajaxlar eru komnir. Það vottar
fyrir kjálkagarði, en kinnkjálka og gómgarða vantar.
Hauskúpan er öll mölbrotin og ekki unnt að líma saman heilabús-
hluta hennar, en andlitshlutinn er sæmilega heill eftir límingu. And-
litið er frekar langleitt (M48/M46X100:75,4 leptoprosop), augn-
tóttarvísitala há (M52/M51xl00L:87,8) og nefvísitala lág (M54/
M55x 100:45,2 leptorrhin).
Útlimabein eru frekar gildvaxin, upparmsleggjar-sveifar-vísitala er
73,4 h(ægri), 73,0 v(instri) og lærleggjar-sköflungs-vísitala er 78,7
h., 78,6 v., þ. e. sveif og sköflungur eru stutt miðað við upparmslegg
og lærlegg.
Líkamshæðin er 173 sm, eða vel í meðallagi, og hefði maðurinn trú-
lega orðið hávaxinn, hefði hann tekið út fullan vöxt.
H123. Bein um 23 ára gamals karlmanns. Köst á bolröndum
hryggjarliða, mjaðmarkambi og setbeinshnjóski eru að gróa við. Eng-
ir garðar eru á kjálkum né gómi. Hliðlæga framtönnin hægra megin
í efra gómi (I2d) er óeðlilega lítil, mun minni en tilsvarandi tönn
vinstra megin.
Hauskúpan var öll mölbrotin, en unnt reyndist að líma hana saman
að nokkru. Hún er stór miðað við líkamshæð, meðalvídd hauskúpu
(cranial module) er 155,3, og höfuðlagið er meðallanghöfði (lengdar-
breiddar-vísitala 76,5) með hátt höfuð, jafnt miðað við lengd sem
breidd þess (lengdar-hæðar-visitala 78,1 og breiddar-hæðar-vísitala
102,1). Ennið er meðalbreitt miðað við hauskúpubreidd (breiddar-
ennisbreiddar-vísitala :66,4). Um andlitið verður lítið dæmt sökum
sköddunar, en breiddin milli kinnboganna er frekar mikil, 140 mm.
Útlimabeinin eru gildvaxin og létt í sér. Upparmsleggjar-sveifar-
vísitalan er 74,1 h. og v. og lærleggj ar-sköflungs-vísitalan er 79,0 h.
og [77,9] v. Líkamshæðin er 166)4 sm eða frekar lágvaxinn maður,
miðað við Islendinga í heiðni.
H 12U. Beinagrind um 24 ára gamallar konu. Öll köst á hryggjar-
liðum eru gróin við, og köst á mjaðmarkambi og setbeinshnjóski eru