Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Page 40

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Page 40
44 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS og haugfé, 309—313). Þó svona nælur séu til úr 7 kumlum, er engin vitneskja til um legu nælanna í þeim, né heldur varðveitt úr þeim bein, er að gagni mættu verða. Væntanlega hafa þessar nælur verið bornar á brjósti og gefið frá sér spanskgrænu á lík- um stöðum og kinga í langri snúru. 4) Fingurhringur. Aðeins einn kumlfundinn bronshringur er til, en búið var að raska kumlinu svo stórlega, þegar það var rannsakað, að enga vitneskju var að fá um upphaflega legu hans, né hvaða bein hann kynni að hafa litað (Árb. 1965, 45—46). Sama máli gegnir um þann eina silfurhring, sem fundinn er í kumli, að eigi er vitað, hvernig hann var borinn. Líklegast hafa hringar verið bornir í heiðni líkt og nú er almennast, á baugfingri, og mætti þá vænta spanskgrænu á nærkjúku þess fingurs og trúlega einnig beggja aðliggjandi fingra. 5) Bjalla. Slíkar bjöllur hafa tvívegis fundizt í kumlum. Úr öðru þeirra, Brú, Biskupstungum, eru engin bein varðveitt og ekkert vitað um legu bjöllunnar. Úr hinu, Kornsá í Vatnsdal, er áðeins varðveittur hluti af hauskúpu með kjálka. Líkið virtist hafa legið á bakið, járnketill var yfir hauskúpunni, silfurnál, 2 tungu- nælur, metaskál og bjalla lágu hægra megin við beinagrindina (Kt. 52). Engin spanskgræna er á beinunum, enda þess ekki að vænta, hafi munirnir verið í upprunalegri legu, en það tel ég mjög vafasamt. Það má telja sennilegast, að þessar smábjöllur hafi verið bornar í snúru um hálsinn líkt og kingur. 6) Undinn vír og bronshúö af meti. Óvíst er um þessa muni, en senni- legast er, að þeir hafi verið geymdir í pússi við belti. Þá eru taldir þeir bronsmunir, er fundust í Vatnsdal, og er það allt haugfé, sem vant er að fylgja konum, en því miður veita fyrri fundir slíkra muna engar upplýsingar, er til stuðnings mættu verða við lausn á viðfangsefninu. Eg hef því athugað um aðra bronsmuni, er konum fylgja, hvort um þá væri einhverjar jákvæðar niðurstöð- ur að hafa. Þríblaðanælur hafa fundizt í 5 kumlum (Kuml og haugfé, 303—309) og þar vill svo vel til, að um eitt þeirra, það að Hafur- bjarnarstöðum, er til fullkomin vitneskja (Árb. 1943—48, 108). 1 því var að heita ósködduð konubeinagrind, sem hvíldi á hægri hlið, hægri handleggur beinn aftur með grafarveggnum, vinstri handleggur krepptur. Fætur voru mjög krepptir um hné og mjaðmir. Hring- prjónn úr bronsi lá á miðju brjósti konunnar og þríblaðanæla lá ofan við prjóninn. Spanskgræna er á 4.—6. rifi hægra megin. Líklegt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.