Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Síða 72
72
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
heiman sökum þeim og kveðja fimm búa á þingi þess, er sóttur er,
enda skal dómur dæma á hendur þeim beinafærslu, að hafa fært til
kirkju fjórtán nóttum eftir vopnatak." (bls. 13).
Þetta eru mjög ýtarleg fyrirmæli og að því er seð verður tryggilega
um það búið, að þeim sé hlýtt.
Kristinna laga þætti lýkur með þessum orðum: „Svo settu þeir
Ketill biskup og Þorlákur biskup, að ráði özurar erkibiskups og
Sæmundar og margra kennimanna annarra, kristinna laga þátt, sem
nú var tínt og upp sagt“ (bls. 36). En af þeim sést, að þátturinn er
ritaður einhvern tíma á tímabilinu 1122—1133, líklega skömmu eftir
að Ketill biskup Þorsteinsson kemur heim úr vígsluför sinni 1122.
Ennfremur má telja það sennilegt, að séu ákvæðin um flutning beina
nýmæli þáttarins, þá séu þau þangað komin vegna áhrifa frá Özuri
erkibiskupi og hafi tíðkazt þá í biskupsdæmi hans. Og hafi svo verið,
mætti vænta þess, að ákvæði um flutning beina, þá kirkjugarður var
lagður af, væri einnig að finna í fornum kirkjurétti einhverra hinna
norðurlandaþjóðanna. En kristinna laga þáttur er einn um þetta
ákvæði, og bendir það til þess, að það sé eldra en þátturinn.
Ef gengið er út frá því, að ákvæðið um gröft kirkjugarða hafi
komizt í íslenzkan kirkjurétt um það bil, er innlendur biskup kom
í landið, og að því hafi verið framfylgt, þá leiddi af því, áð ekki mætti
vænta beina í neinum þeim kirkjugarði, sem hefði verið lagður niður
fyrir gildistöku kristinréttar Árna biskups þ. e. a. s. 1275 í Skál-
holtsstifti og 1354 í Hólastifti. En í honum eru engin fyrirmæli um
beinaflutning, þá kirkjugarður er lagður niður.
Fornar heimildir geta um fimm kirkjugarða, sem voru grafnir,
þegar þeir voru fluttir, og skulu nú þessar heimildir athugaðar
nokkru nánar.
í Egilssögu segir: „Grímur að Mosfelli var skírður, þá er kristni
var í lög leidd á Islandi; hann lét þar kirkju gera. En það er sögn
manna, að Þórdís hafi látið flytja Egil til kirkju, og er það til jar-
tegna, áð síðan er kirkja var gör að Mosfelli, en ofan tekin að Hrís-
brú sú kirkja, er Grímur hafði gera látið, þá var þar grafinn kirkju-
garður. En undir altarisstaðnum, þá fundust mannabein; þau voru
miklu meíri en annarra manna bein. Þykjast menn það vita af sögn
gamalla manna, að mundi verið hafa bein Egils. Þar var þá Skapti
prestur Þórarinsson.". . . . „Þá vildi Skapti forvitnast um þykkleik
haussins; tók hann þá handöxi vel mikla og reiddi annarri hendi
sem harðast og laust hamrinum á hausinn og vildi brjóta, en þar sem
á kom, hvítnaði hann, en ekki dalaði né sprakk, og má af slíku marka,