Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Qupperneq 82
82
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
um margt og eftirtökusamur. Hann var nákunnur í prestakallinu,
því í Kálfholti ól hann mestallan aldur sinn. Hann segir meðal
annars4: „Kirkja er mér sagt að hafi verið á Jólgeirsstöðum, hafi
svo flutt verið að Odda, þá hefir Áskirkja líklega ekki til verið,
mun Áshverfið (hafa) átt kirkjusókn að Jólgeirsstöðum, fyrir þessu
hefi ég ekkert nema munnmæli afgömul og því til sönnunar, að
kirkja hafi þar verið, er ein mannshöfuðkúpa, er blásið hefir þar upp
úr sandi, þar sem bærinn átti að vera; ég sá hana sjálfur í haust.“
í þjóðsögum Jóns Þorkelssonar er þessi saga, tekin eftir handriti
Brynjúlfs Jónssonar frá Minna-Núpi, skrifuðu 1861.5 6 — „Jólgeir
landnámsmaður reið einu sinni hart frá bæ sínum á Jólgeirsstöðum.
Sá hann þá sand í sporum hestsins. Þá sagði hann: „Ekki verður
þess langt að bíða, að þessi jörð eyðileggist af sandfoki, skal ég
og hér ekki lengur vera“. Hann flutti sig þá burt frá Jólgeirsstöð-
um með allt sitt og hét því, að hann skyldi þar búa, sem hann yrði
staddur um sólarlag um kvöldið. Varð það í Odda, og þar byggði
hann síðan. Þau munnmæli fylgja Oddastað frá fornöld, að hann
skal ávallt eflast með örlæti, en eyðast með nízku, og segja menn
það sé sannreynt, að örlátir menn búi þar bezt“.
Því miður getur Brynjúlfur frá Minna-Núpi ekki um heimildar-
mann sinn, enda var það ekki hans siður um þær sagnir, er hann
skráði. ólafur læknir ísleifsson í Þjórsártúni skrifaði einnig mjög
skemmtilega grein um Jólgeirsstaði og landnámsmanninn þar.
f nýsömdu handriti að örnefnaskrá í Ásahreppi í Rangárvalla-
sýslu stendur þetta, með hendi Óskars Þorsteinssonar :G — „Austan
við Bótina er Jólgeirsstaðahóll; þar var kirkja til forna. Munn-
mæli herma, að þegar hún var rifin og flutt, þá hafi verið ákveðið,
að hún skyldi endurbyggð þar sem mennirnir, er flyttu hana, yrðu
staddir um sólsetur, og áttu þeir að vera staddir í Odda um það
leyti; var þá Oddakirkja reist.“ —
Það er auðsætt, að framanritaðar sagnir eru ein og sama sagan,
sem um getur í Jarðabók Á. M„ en hafa fengið á sig ýmis konar
útflúr, eftir því sem tímar liðu, og eru þær settar hér í réttri tíma-
röð, til þess að sýna þá hlið málsins.
Landnáma segir frá því, að Þorgeir, bróðir Þorsteins tjaldstæð-
ings, keypti Oddalönd af Hrafni Hængssyni, og bjó hann fyrst í
4 Sóknarlýsing Rangárvallasýslu. 1840.
n Jón Þorkelsson, Þjóðsögur og munnmæli, bls. 165.
6 Örnefnalýsing Rangárvallasýslu, í Þjóðminjasafni.