Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Page 86

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Page 86
86 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS átti breytingin sér stað? Því miður er ekki hægt að gefa óyggjandi svar við þessum spurningum. Það hefir verið almenn skoðun eða trú á heimaslóðum, að byggð hafi lagzt þar niður endur fyrir löngu sak- ir uppblásturs. Og í bókinni Byggð og saga getur Ólafur Lárusson þess til,10 sennilega af sömu ástæðu, að jörðin hafi lagzt í eyði lík- lega ekki seinna en á 15. öld, vísast sakir þess að hún hverfur þá úr kirknamáldögunum. Hér skal að vísu ekkert fullyrt um þetta efni, en vel mættu aðrar ástæður hafa valdið þessari breytingu. Nú munu engar áreiðanlegar heimildir um það, hvenær sókna- skiptingin komst á. Hún er auðsjáanlega ævafornt skipulag og virðist hafa haldizt í meginatriðum óbreytt um margar aldir, þótt smávægilegar tilfærslur hafi ef til vill verið gerðar öðru hverju. Svo mikið er víst, að það er öruggt, að sóknaskipunin á þessu svæði hefir staðið gjörsamlega óbreytt frá því um 1740 fram um alda- mótin 1900. Og í rauninni er ekki hægt að sjá annað en svo hafi verið frá því um 1500, en þá eru fyrst ritaðar heimildir um prest í Kálfholtsprestakalli, sem þjónaði Kálfholts-, Háfs- og Áskirkjum.* 11 Og mestar líkur eru til, að fyrirkomulagið sé miklu eldra. Þótt Vilchinsbók geti Jólgeirsstaðakirkju að engu, hvorki jarðar né kirkju, né telji að Áskirkja hafi þar nokkurra hagsmuna að gæta, þykir mér líklegast, að sameining kirknanna hafi átt sér stað fyrir árið 1397 og jafnvel nokkuru fyrr. Er það af þremur ástæðum: 1) Séra Brynjólfur í Kálfholti segir í sóknarlýsingu sinni, að af- gömul munnmæli telji, að Jólgeirsstaðakirkja hafi verið eldri en Áskirkja og fyrst frameftir aðalkirkja. Þetta er ekki ótrúlegt. Meira að segja sennilegast, að Jólgeir hafi reist guðshús á bæ sínum að írskum sið, en vestan um haf er hann sagður hafa komið. Frá því um 1400 var Áskirkja helguð tveimur dýrlingum, Maríu drottningu og Ólafi konungi helga. Nú voru það engin nýmæli, að kirkja væri helguð tveimur eða fleiri dýrlingum. en grunur minn er sá, að María drottning sé upphaflegi dýrlingur Jólgeirsstaðakirkju, en hafi verið flutt að Ási við sameininguna. Hún var dýrkuð mjög um allan hinn kristna heim, ekki sízt á írlandi, fyrir og um daga Jólgeirs. Það er og eftirtakanlegt, hve margar Maríukirkjur í Rangárþingi voru á hinu írska landnámssvæði. 2) Vilchinsmáldagi segir frá því, að kirkjan í Hróarsholti í Flóa, 10 Ólafur Lárusson, Byggð og saga, Reykjavík 1944, bls. 137. 11 DI VII, bls. 453. Ministerialbók Kálfholts 1785—1816, p. 4. Prestatal og prófasta á Islandi. 2. útg. Reykjavik 1949, bls. 70.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.