Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Side 141

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Side 141
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1965 141 færandi hendi. Var af safnsins hálfu reynt að taka honum svo sem verðugt er, því að hann hefur verið stórgjöfulli við safnið en flestir menn aðrir. Hinn 5. febr. var aftur samkoma í safninu í tilefni af því, að sýnd var brjóstmynd af séra Jóni Sveinssyni, sem sett hefur verið upp í safninu, að verulegu leyti fyrir atbeina Haralds Hannessonar hag- fræðings. Viðstaddir voru menntamálaráðherra, herra Jóhannes Hólabiskup og fleiri góðir gestir. Hinn 5. júní var einnig sett upp í anddyri safnsins brjóstmynd af Matthíasi Þór'ðarsyni þjóðminjaverði, gerð af Einari Jónssyni. Þjóðminjavörður fór tvívegis til útlanda á árinu. Hið fyrra sinn var hann boðinn af herra Udo Bey í Hamborg og hélt í þeirri ferð fjóra fyrirlestra um Þjóðminjasafn íslands, í Hamborg, Kiel, Vestur- Berlín og Köln. Voru þeir allir haldnir á vegum þýzk-íslenzkra félaga, í Hamborg þó í samstarfi við Altonaer Museum. Frá Þýzkalandi fór svo þjóðminjavörður til Englands í boði British Council og kynnti sér einkum safnið í Liverpool, en þaðan fór hann til eyjarinnar Man- ar og dvaldist þar einn dag og skoðaði Manx Museum og flestar meiri háttar fornminjar á eynni. Ferð þessi stóð frá 10. til 28. marz. Síðari ferðin var farin til Danmerkur í boði Selma og Kaj Langvads legat til bestyrkelse af den kulturelle forbindelse mellem Island og Danmarlc. 1 fer'ðinni flutti þjóðminjavörður erindi um sögu Islands og menningu í fimm lýðháskólum, Grundtvigs Hojskole hjá Hillerod, og skólunum í Vallekilde, Ryslinge, Snoghoj og Askov. Að fyrirlestr- unum loknum dvaldist hann síðan rúma viku í Kaupmannahöfn, og fór sá tími að mestu leyti í að reka ýmis brýn erindi safnsins, ýmist fræðileg eða varðandi hagsmunamál þess. Þessi ferð stóð frá 18. nóv. til 5. des. Gísli Gestsson safnvörður sótti 5. víkingafundinn, sem haldinn var í Þórshöfn í Færeyjum dagana 18.—28. júlí. Að fundinum loknum fór Gísli til Danmerkur og Englands og kom heim 19. ágúst. Elsa E. Guðjónsson sótti aðalfund hjá Centre international d’etude des textiles anciens í Lyon dagana 25.—26. október og er nú full- trúi fyrir ísland í stjórn samtakanna. Að fundinum loknum fór frú Elsa til Kaupmannahafnar og rannsakaði búningamyndir í yngri handritum Árnasafns, en síðan lagði hún leið sína til Ósló og tók þátt í fundi norrænna sérfræ'ðinga um samræmda fagorðanotkun á sviði textílrannsókna. Einnig flutti hún erindi með skuggamyndum í Selskap for norsk kulturgransking. Erindið fjallaði um íslenzkan útsaum, vefnað og búninga.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.