Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Side 143
SKÝESLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1965
143
Eyjólfur Einarsson, málverkasýning, 11.—19. sept.
Siguringi E. Hjörleifsson, málverkasýning, 25. sept.—3. október.
Helga Weisshappel, málverkasýning, 9.—17. okt.
Börje Sandelin, svartlistarmyndir, 23.—31. okt.
Höröur Ágústsson, „svart-hvítt“, 5.—14. nóv.
Baltasar Samper, málverkasýning, 20.—28. nóv.
Sýning á dönskum litografíum, (Jakob Hafstein), 2.—12. desember.
Af þessum sýningum hafði safnið algjörlega veg og vanda af
tveimur. Önnur þeirra var sýningin á myndagjöf Mark Watsons,
þeirri sem sagt var frá í síðustu ársskýrslu, og er uppistaða í henni
vatnslitamyndir Collingwoods, þótt þar sé fleira merkilegt. Þótti rétt,
að almenningi gæfist kostur á að sjá þetta merkilega myndasafn,
þótt sérstök sýning á verkum Collingwoods væri raunar haldin á veg-
um safnsins fyrir nokkrum árum. Gestir á sýningunni voru alls
1115.
Hin sýningin, sem safnið hélt, var norska bergristusýningin, sem
opnuð var með viðhöfn að viðstöddum menntamálaráðherra og all-
mörgum öðrum gestum. Við opnun sýningarinnar flutti þjóðminja-
vörður eftirfarandi ávarp:
Menntamálaráðherra, sendiherra Noregs, virðulegu gestir.
Mér er það mikil ánægja að bjóða yður öll velkomin hingað í
Þjóðminjasafn Islands.
Sýning sú, sem hér getur að líta, ber nafnið Norskar berg-
ristur, listaverk frá steinöld og bronsöld. Hún er þannig til
komin, að síðastliðið haust kom að máli við mig þáverandi sendi-
herra Noregs hér á landi, Johan Cappelen, og gerði Þjóðminja-
safninu kost á, fyrir hönd menntamáladeildar norska utan-
ríkisráðuneytisins, að fá að láni litla og valda sýningu norskra
bergristna, sem útbúin hafði verið af fornleifafræðingum við
Björgvinjarsafn, Bergens museum, og þegar hafði verið sýnd
í nokkrum löndum við góðar undirtektir. Okkur hér í safninu
leizt þegar í stað mjög vel á þessa hugmynd, og með greiðu sam-
þykki menntamálaráðherra tókum við hinu góða boði með þökk-
um.
Og nú er sýningin hingáð komin, svo sem sjá má, og er
öðrum þræði stórar ljósmyndir af bergristum og klettamálverkum
Noregs, en öðrum þræði gúm-afsteypur af slíkum verkum, lit-
aðar eðlilegum litum. Bergristur og klettamálverk, hellalist, er