Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Síða 154
154
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
er g-jöf frá honum, systur hans og systursonum til minningar um
Gísla bónda Sigurðsson í Neðra-Ási í Hjaltadal og konu hans Kristínu
Björnsdóttur. Vöxtum af fé þessu skal verja til viðhalds á innan-
búnaði dómkirkjunnar á Hólum eftir því sem með þarf á hverjum
tíma og til hrekkur.
Bygg'ðasöfn.
Starfsemi byggðasafna er ekki nema að nokkru leyti viðkomandi
Þjóðminjasafninu, enda skal ekki um hana fjölyrt. Ríkið veitti kr.
300 þús. til að styrkja byggingar byggðasafnshúsa, og var upphæð-
inni skipt í þrjá jafna hluta milli Byggðasafns Húnvetninga og
Strandamanna, Minjasafnsins á Akureyri og Byggðasafns Vestfirð-
inga á ísafirði, sem hlutu 100 þús. kr. byggingarstyrk hvert um sig.
Safnið á Akureyri hefur þegar verið opi'ð og starfað reglulega í tvö
ár, safnið á ísafirði hefur verið að skapast undir handarjaðri Jó-
hanns Gunnars Ólafssonar bæjarfógeta á mörgum undanförnum ár-
um og mun senn verða frágengið í öllum verulegum atriðum, en í
Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna er enn mikið verk óunn-
ið, þótt nokkuð þokaðist í áttina á þessu ári. Unnið hefur verið að
því að fullgera húsið, en ekkert reyndist unnt að vinna að uppsetn-
ingu safnsins sjálfs. Þó ber þess að geta, sem raunar er óviðkomandi
byggðasafninu sem slíku, að fram fór gagngerð viðgerð á hákarla-
skipinu Ófeigi, sem er í sérstöku húsi á Reykjum, sambyggðu við
hús Byggðasafnsins, og þá viðgerð annaðist Eðvald Halldórsson á
Stöpum. Safnmennirnir Gísli Gestsson og Þór Magnússon fóru norð-
ur til þess að hafa hönd í bagga með þessari viðgerð hinn 5. febr.
og voru þar í tvo daga til skrafs og ráðagerða við Eðvald, og aftur
fór Þór Magnússon norður í sama skyni hinn 25. febr. Að viðgerð
lokinni var skipið bikað, og þykir viðgerðin hafa tekizt mjög vel og
giftusamlega. Þá er þess einnig að geta, að Kristján Eldjárn þjóð-
minjavörður og safnmennirnir Gísli Gestsson og Þorkell Grímsson
fóru nor'ður að Svínavatni í Austur-Húnavatnssýslu hinn 4. október
og dvöldust þar til 8. sama mánaðar við að taka niður viði úr gam-
alli stofu og merkja til flutnings og enduruppsetningar í safninu á
Reykjum. Viði þessa alla gefa þau Svínavatnssystkin safninu á
Reykjum, svo og ýmsa hluti, sem safnmennirnir tóku í gamla bænum
á Svínavatni og fluttu vestur eftir. Er ætlunin að setja upp í safninu
baðstofu frá Syðstahvammi í Kirkj uhvammshreppi og svo þessa stofu
frá Svínavatni, og hefur á þessu ári verið samið við Magnús Gests-