Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Síða 155
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1965
155
son kennara um að vinna við uppsetningu húsanna, þótt verkið gæti
ekki hafizt fyrir áramót.
Áfram er unnið að undirbúningi nokkurra byggðasafna, sem í
uppsiglingu eru, og mun þeim væntanlega verða veittur byggingar-
styrkur á næstu árum eftir því sem þeim miðar áfram og efni standa
til. En auðséð er, að byggðasöfn verða ekki mörg hér á landi, enda
er það rétt stefna, að þau verði fremur færri og stærri en fleiri og
minni.
Fornminjarannsóknir og fornminjavarzla.
Þór Magnússon hélt áfram við rannsóknirnar í Hvítárholti, og
var ætlunin að þeim yrði að fullu lokið, þótt það færi á annan veg.
Miklu verki var þó afkastað, og er þess að vænta, að allt hið merkasta
sé komið í ljós, sem sé skáli, fjögur jarðhús og fjós og hlaða (að því
er helzt er ætlað). Enginn vafi virðist leika á, að bær þessi sé frá
söguöld, ef til vill frá landnámsöld, og verða þessar rannsóknir að
teljast meðal hinna merkustu, sem gerðar hafa verið hér á landi.
Eftir er enn að fullkanna hitt og þetta á staðnum og gera staðar-
kort, en væntanlega er þetta ekki mjög mikið verk. Vísindasjóður
hefur veitt nokkurn styrk til þessara rannsókna.
Dagana 3.—6. sept. var þjóðminjavörður á ferðalagi um Dala-
sýslu og rannsakaði þá mannvistarlag í Ytri-Fagradal á Skarðs-
strönd, en þar hafði fyrr um sumarið fundizt kambhylki frá söguöld.
Virtist þetta vera öskuhaugur, og bendir hann til byggðar allmiklu
neðar en bærinn er nú, en annars kom ekki neitt sérlega markvert
í ljós. 1 þessari ferð kom þjóðminjavörður við á mörgum stöðum og
gerði ýmsar athuganir.
Þjóðminjavörður fór einnig eftirlits- og könnunarferð til Norður-
lands dagana 10.—21. ágúst og kom þá við á mjög mörgum stöðum
til þess að ráða ýmsum ráðum varðandi gamlar byggingar, byggða-
söfn og friðlýstar minjar og setja upp friðlýsingarmerki. Því verkefni
var eftir föngum þokað áleiðis á árinu, en sú endurskoðun, sem að
undanförnu hefur stundum verið drepið á í ársskýrslum safnsins,
þyrfti að ganga betur en verið hefur, en hér koma til miklar ?nnir
hjá þessum fáu mönnum, sem safnið hefur á að skipa.
Hinn 13. sept. fór þjóðminjavörður í fylgd með Sigurði Nordal
prófessor upp að Grímsá í Borgarfirði í því skyni að skoða stað þann,
sem Daníel Fjeldsted læknir telur munu vera Laxfit þá, sem nefnd er í
Egils sögu, en enginn hefur vitað á seinni tímum hvar verið hefur.