Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1966, Page 157
FRÁ FORNLEIFAFÉLAGINU
AÐALFUNDUR 1965
Aðalfundur Hins íslenzka fornleifafélags var haldinn í Bogasal Þjóðminjasafnsins
fimmtudaginn 30. des. 1965 og hófst kl. 8%.
Formaður félagsins, Jón Steffensen prófessor, setti fundinn og minntist þeirra
félagsmanna, sem kunnugt er um að látizt hafi síðan síðasti aðalfundur var haldinn.
Þeir eru:
Ágúst Sigurmundsson, myndskeri, Reykjavík,
Árni Sveinsson, bóndi, Kálfsstöðum,
Helgi Hjörvar, rithöfundur, Reykjavík,
Signar Valdimarsson, kaupmaður, Reykjavík,
Sigfinnur Vilhjálmsson, veitingam., Djúpavogi.
Risu fundarmenn úr sætum i virðingar skyni við hina látnu félaga.
1 félagið hafa gengið á þessu ári 36 félagar, og eru félagar nú alls 658.
Formaður skýrði síðan frá því, að Árbókin fyrir árið 1965 væri að öllu leyti full-
frágengin í próförkum og mundi prentun hefjast næstu daga. Kvað hann Árbókina
mundu koma út á sama tíma og undanfarin ár, um mánaðamót jan.—febr., og
skýrði frá efni hennar.
Þessu næst las féhirðir reikning félagsins fyrir 1964.
Þá fór fram stjórnarkosning. Kjósa skyldi stjórn, varastjórn, endurskoðendur
og þrjá fulltrúa til aðalfundar 1969. Kosning fór svo, að allir viðkomandi embættis-
menn voru endurkosnir svo sem hér segir: Formaður Jón Steffensen prófessor, skrif-
ari Kristján Eldjárn þjóðminjavörður, féhirðir Gísli Gestsson safnvörður, varafor-
maður Magnús Már Lárusson prófessor, varaskrifari Þórhallur Vilmundarson pró-
fessor, varaféhirðir Snæbjörn Jónsson skjalaþýðari. Endurskoðendur: Theodór B.
Líndal prófessor og Einar Bjarnason endurskoðandi ríkisins. Fulltrúar til aðal-
fundar 1969: Jón Ásbjörnsson fv. hæstaréttardómari, Björn Þorsteinsson sagnfræð-
ingur, Gils Guðmundsson rithöfundur.
Þá gaf formaður orðið laust, og kvaddi sér þá hljóðs dr. Helgi P. Briem og mælti
á þá leið, að fram hefði komið mjög eftirtektarverð niðurstaða af kolefnisgreiningu
sýnishorns frá gamla bæjarstæðinu við Aðalstræti í Reykjavík og mætti það meðal
annars verða aukin hvöt til að gera umfangsmikla fornleifarannsókn á þessum
stað, sem ætla mætti að væri elzta mannabyggð á landinu. Mælti dr. Helgi með því,
að fornleifafélagið skoraði á Alþingi að veita fé til slíkra rannsókna. Kristján
Eldjárn þjóðminjavörður ræddi þetta mál nokkuð og taldi eftir öllum ástæðum
eins vænlegt, að fundurinn gerði þá ályktun, að æskilegt væri að framkvæma um-
rædda fornleifarannsókn og félagið vænti þess af fjárveitingavaldinu, að það legði
fram fé í þessu skyni, þegar eftir væri leitað. Urðu nokkrar umræður milli Helga og
Kristjáns um þetta mál, en síðan var borin fram eftirfarandi tillaga frá dr. Helga: