Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Blaðsíða 66
66
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
og Þórður Bjarnason eru á hröðum flótta undan óvinum sínum.
Ef þeir afklæðast þarna í því litla afhýsi sem baðstofan til
baða hefur verið talin þá eru þeir ekki að kveinka sér í nóvem-
berkuldanum. Ylur hefur ekki verið í ofninum, inn í hann stinga
þeir brynjum og stálhúfum. Þetta hlýtur að vera íveruhús. Það
væri þá helzt síðasta dæmið sem gæti valdið efasemdum. „Bóndi
var til baðs farinn, ok var út að ganga til baðstofunnar". Þó kann
vel að vera að höfundur sögunnar gefi ekkert tilefni til annarra skýr-
inga en hin dæmin. Hann hefur bara það augljósa sérkenni yfirleitt
að vera ónákvæmur í lýsingum. Útgefendur Sturlungu segja um 2.
dæmið að hér sé talað um baðstofu til baða. En því þá það ? Enn höf-
um við enga vissu um innbyrðis afstöðu húsa né hitt hvort þau voru
áföst hvert öðru alls staðar á landinu — hitt er líklegra eins og
reyndin hefur orðið síðar á öldum að húsaskipun er mismunandi
eftir landshlutum. Menn hafa gert sér í hugarlund að baðstofur tili
baða hafi staðið sér vegna eldhættu og reynt að skýra á þann veg
að baðstofur hafa ekki fundizt við uppgröft bæjarrústa frá miðöld-
um (sbr. þó síðar).
Baðstofan í fornbréfum10:
1 sættargerð Magnúss konungs og Jóns erkibiskups 1277:
„Eptir þui war oc samit vm tivndar giorð vm allan noreg . . . at
menn skulu þessa tiund gera æfinliga oskerða . af ... mylnum oc
baðstofum .. .“ ÍF II, 153. Hér mun átt við almenningsbaðstofur.
I máldaga Svalbarðskirkju í Þistilfirði 1394 er sagt að hún eigi
„vervist i vidiarvik oc skalagiord oc sodhvs oc badstofv“. ÍF III, 588.
Ár 1397 í landamerkjaskrá kirkjujarða á Staðastað:
„Úr skerinu í þrætuvík sjónhending í stein þann, er stendr undir
baðstofuhorni (í) Kerlingarholti ...“ IF IV, 176.
26. júlí 1405 votta fjórir menn um jarðaskipti og jarðakaup „j
badstofunni a vidimyri j skagafirdi“. IF III, 704.
Skiptagjörningur 2. jan. 1431 í Húsavík:
„... skala ok badstofu ok eldhus til jafnadar .. .“ IF IV, 436.
3. marz 1431 festir Knútur Einarsson sér Ingiríði Þórisdóttur í
votta viðurvist „j badstofuone a gilaa“. ÍF IV, 442.
18. maí 1460. I kaupbréfi fyrir hlut í Arnardal neðra í Skutils-
firði skal kaupandi hafa „gard nordr fra med ollum wnderstaudum.
badstofu ok forbadstofu þar wm þvert“. IF V, 211.
24. júní 1471. I afhendingarbréfi fyrir hálfum Héðinshöfða á Tjör-
nesi fékk kaupandi m. a. „badstofv alla ok bvr i gaungum“. IF V, 617.