Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Blaðsíða 143
KIRKJURÚST Á KROSSI Á SKARÐSSTRÖND
143
Kirkjutóft og grafir á Krossi á Skarðsströnd. 1:200.
Eins og þegar er í ljós látið, sneri hús þetta frá austri til vesturs,
með dyr á vesturstafni. Það var 2,50 m breitt að innanmáli, en 5 m
að lengd. Lengdin er því sama og breiddin tvöföld. Undirstöður veggj-
anna eru um 1,30 m að þykkt. Gólfskánin þar þunn, dökkleit með
öskudrefjum. Engra mannvirkja varð vart innanhúss. Engin voru
hér merki annarra bygginga, hvorki frá eldri né yngri tíma.
Réttum 3,50 m sunnan við fremri hluta hússins var mannsbeina-
grindin. Höfuðið hafði borið nokkru hærra en líkamann og þess
vegna hafði ýtan fært hauskúpuna úr stað, þó að hún léti annað
óhreyft. Beinagrindin lá frá austri til vesturs, höfuð í vestur, á
bakinu með beina fætur, og handleggi niður með síðunum. Gröf hafði
verið tekin niður að fastri hellu, og var hún um 28 sm að breidd,
en lengd hennar varð ekki ákveðin. Ofan á beinagrindina voru um
80—90 sm. Kistuleifar sáust engar. Frá öxl og niður í ristarkrók á
líkinu voru um það bil 1,30 m, en lærleggur (lengsta mál) reyndist
42 sm. Beinin voru annars mjög fúin, og voru því aðeins hirt höfuð-
beinin, sem þó tolldu ekki saman.
Ekki varð vart fleiri beinagrinda, þótt grafið væri á nokkrum
stöðum til reynslu. (Við þetta atriði skýrslunnar er því að bæta, að
seinna veittu bændur þá vitneskju, að þeir hefðu orðið varir við aðra
beinagrind fast austan við hina fyrri. Hún var um 50 sm dýpra