Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Blaðsíða 11
LÍKNESKJUSMÍÐ
11
varg’stönn eða stórri hundstönn. En þá
er vel er skyggt ...
52rll—12
Síðan skaltu fara út í sólskin og láta
flóna af sólunni silfrið. Tak síðan
burst og dreif á gullfarga sem þynnst.
Síðan skaltu stappa með fingri þínum
sem jafnast.
et tertiam similiter, si opus fuerit, ut
eo lucidius cum dente siue cum lapide
polire possis.1)
DDA I xxiiii
Deinde coniunges easdem partes unam
ad alteram super ipsam tabulam, . . .
et superlinies eas manu tua ex sup-
radicto glutine uernition atque siccabis
ad solem.2)
1 textanum um líkneskjusmíð eru leiðbeiningar um gerð lita. Text-
inn er ruglingslegur og ef til vill eitthvað afbakaður. 1 DDA I xxv
er kennt að mala liti (stein) við línolíu til að nota á tréskurð og sagt
að þeir verði aðeins notaðir á þá hluti sem sé hægt að þurrka í sól-
skini, og að málning með þeim sé seinlegt og þreytandi verk. Þar
er einnig leiðbeining um gerð þurrkefnis sem hægt sé að blanda í
litina til að flýta verkinu, en á eftir fer klausa um liti, sem íslenzki
textinn minnir lítillega á:
52r.20—25
Síðan skaltu mala stein með óleum, að
öllu einnig með klár, utan það að græn-
an má eigi mala með klár, en grænan
skal mala með óleum og allan annan
með óleum, en tempra með hvítt það
sem þú vilt gera mengað, eða ódýrra
stein til drýgingar sakir.
DDA I xxv
Omnes colores et mixturae eorum hoc
gummi teri et poni possunt praeter
minium et cerosam et carmin, qui cum
claro oui terendi et ponendi sunt. Viride
Hispanicum non misceatur suco sub
glutine, sed per se cum gummi ponatur.
Aliud uero miscere potes, si uolueris.3)
I kaflanum um líkneskjusmíð er óvenjumikið af sjaldgæfum og
óþekktum orðum, bæði af norrænum uppruna og tökuorðum. Orð
sem eru notuð í latneskum beygingarmyndum eru ‘lerepto’ 52r.ll,
!) Þegar gull er lagt, tak klár, sem er hrært úr eggjahvítu án vatns, og drag
mjúklega með pensli á þá staði sem gylla skal. ... Þegar það hefur verið
lagt og er þurrt, legg annað yfir á sama hátt ef vilt og á sama hátt hið
þriðja ef þarf, svo að þú getir betur gert það skínandi fægt með tönn eða
steini.
2) Teng síðan þessa búta hvern við annan á borðinu . . . og drag áðurnefndan
límfernis á með hendi þinni og lát þorna við sól.
3) Alla liti og litablöndur er hægt að mala og nota með þessu þurrkefni, nema
menju, blýhvítu og karminrauðan lit, sem eru hrærðir og notaðir með eggja-
hvítu. Spanskgrænan lit á ekki að blanda við jurtasafa undir fernis, heldur
á að nota hann einan sér með þurrkefni. En þú getur blandað honum við
aðra liti ef þú vilt.