Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Blaðsíða 64
64
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
frá húsum á heimilum heldri bænda, má þó sjá, að baðstofur hafa
einnig tíðkazt á venjulegum bændabýlum. 1 Lárentíuss sögu kemur
fyrir tímaákvörðunin ,,um baðferðir“, er merkt hefur þann tíma
kvöldsins, er menn gengu til baðs. Hlýtur baðsiðurinn að hafa verið
næsta almennur um miðja 14. öld, fyrst við hann er miðað á þennan
hátt. . . . En auk baðsins má sjá þess dæmi í Sturlungu, að baðstofur
hafa verið notaðar sem íveruherbergi.“8 Breyting baðstofunnar í
íveruherbergi telur hún verða „líklega á 15. öld“.9
Eins og fram kemur hjá öllu þessu fólki telur það að baðstofan
hafi verið til baða í eina tíð og böð almenn.
Þá er rétt að koma að skoðun undirritaðrar að baSstofur til baða
hafi aldrei veriö til á Islandi heldur aöeins sem íveruhús eins op vi8
þekkjum svo vel. Heimildir manna um þessi efni eru Sturlunga, forn-
bréf, biskupa sögur o. fl. Verður nú leitazt við að færa rök fyrir
málinu. Eru þau aðallega tvenns konar. 1 fyrsta lagi að textar gefi
yfirleitt ekki tilefni til þeirrar túlkunar að um baðstofur til baða sé
að ræða. 1 öðru lagi þar sem um bað ræðir megi oftast sjá að það er
tengt trú manna. En fleira má tína til. Hvað merkti orðið bað?
Ennfremur má benda á ýmis dæmi úr nágrannalöndum til stuðnings
málinu.
Eins og í upphafi segir hefur Sturlunga verið mönnum höfuð-
sönnunargagn um tilvist baðstofu og baða hér á landi á miðöldum.
Verða þessir textar því teknir upp í meginmál úr útgáfunni 1946,
einnig úr fornbréfum en auk þess vísað til texta úr öðrum ritum
fram til 1540 samkvæmt seðlasafni orðabókar Árnanefndar í Kaup-
mannahöfn (sjá bls. 82—84 hér á eftir).
Á liðlega 20 stöðum í Sturlungu er minnzt á böð eða baðstofur
eða eitthvað áhrærandi bað. Alls eru dæmin 10 þar sem minnzt er
á baöstofur:
1) Sturl.
2) Sturl.
3) Sturl.
4) Sturl.
I, 339: Tók hann sik upp ok hljóp vestr yfir heiði um
nóttina til Vága, ok þaðan fór bóndasonr út til
Vatnsfjarðar ok kom þar fyrir dag. Var Þórðr
þá í baðstofu ok nökkurir menn.
I, 366: Þeir Oddr gengu til þeira dura, er váru á bak
húsum ór eldhúsi til baðstofu, ok þröngt sund
fyrir úti.
I, 382: Höfðu þeir gengit at Filippusi í baðstofu ok
særðan hann þar.
I, 498: Þeir tóku hús á Hámundi ok brutu upp hurð.