Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Side 19

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Side 19
KRISTJÁN ELDJÁRN ÞORLÁKSSKRÍN I SKÁLHOLTI SAMTÍNINGUR UM GLATAÐAN FORNGRIP Tilbeiðsla helgra dóma var einn veigamesti þátturinn í trúarlífi miðalda hér á landi eins og annars staðar í kaþólskum löndum. Helgir dómar voru ýmist bein eða beinflísar eða einhver vottur af öðrum líkamshlutum helgra manna, að því er talið var, ellegar ögn af einhverjum hlut, sem kenndur var við dýrling eða talinn hafa á einhvern hátt komizt í snertingu við hann. Kirkjur settu mjög metn- að sinn í að eignast einn eða fleiri helga dóma, og var þá leitazt við að búa þeim sem fegursta umgerð af einhverju tagi, svonefnt reli- quiarium eða helgidómahirzlu1. Voru það oft hinar mestu gersemar bæði að efni og listasmíð. Algengt var, en alls ekki einhlítt, að hirzlur þessar væru sem hús (kirkja) í laginu, og voru þær þá öðru frem- ur nefnd skrín eða skríni, þó að þetta orð þurfi ekki endilega að vera bundið við hirzlu í húsformi2. Varðveitzt hafa hér á landi tvö slík skrín, bæði frá hámiðöldum, líklega um 1200 eða snemma á 13. öld. Annað er frá Keldum á Rangárvöllum, nú í Þjóðminjasafni Dana, miðaldadeild (nr. 923), hitt frá Valþjófsstöðum í Fljótsdal, nú í Þjóðminjasafni Islands (Þjms. 3612). Þau eru ef til vill norsk að uppruna, en vel gætu þau verið íslenzk, og þyrfti enn að rannsaka það mál. Bæði þessi skrín eru eins og lítil hús í lögun, en undir þeim súlnaraðir með boghliðum milli súlna. Þau eru smíðuð úr fjölum, en hafa verið og eru enn að talsverðu leyti klædd drifnum látúns- þynnum gylltum, og þar í hafa verið felldir steinar, að minnsta kosti á öðru skríninu3. Slík lítil húslaga skrín eru eins og smámyndir af þeim helgidóma- hirzlum, sem ágætastar voru að íburði, tign og helgi, og til aðgrein- ingar frá öðrum eru nefndar dýrlingaslcrín, þ. e. skrín, sem í er eða í er talinn vera hluti af eða helzt heil beinagrind heilags manns eða dýrlings og geymt er á þeim stað sem sérstaklega er tengdur helgi hans. Slíkum skrínum er búinn sérlega vandaður sess í kirkjunni á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.