Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Blaðsíða 70
70
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
mundr við konu þá, er honum þerrði, at
hon skyldi gnúa þurrkunni um háls honum
sem fastast, — „því at mér klæjar þar
mjök“. (Svínfellinga saga).
9) Sturl. II, 148: Reið Þórðr suðr eftir páskaviku ok Ingi-
mundr Böðvarsson. . . . Kómu þeir til Búr-
fells, höfðu þar messu ok dagverð. Riðu
þeir um kveldit í Skálaholt. Var þá Þor-
gils í baði og kom litlu síðar innar ok fagn-
aði þeim vel. (Þorgils saga skarða).
10) Sturl. II, 254: (Aron Hjörleifsson er kominn að Svína-
felli). Þat var síð um kveldit, ok váru menn
mettir, en Ormr bóndi var til baðs farinn,
ok var út að ganga til baðstofunnar. . . .
Þá snýr maðr einn skyndilega inn í bað-
stofuna ok segir, hverr maðr kominn
er. ...
. . . Ormr bóndi kemr ór baði ok fréttir,
hvat þeir hefði gert af manninum (Aroni).
11) Sturl. II, 271—2: (Sturla Sighvatsson var óvinur Arons og
strax og hann kemur til Björgvinjar utan
af íslandi, hyggst hann finna Aron. En
Aroni er gert viðvart). Þat bar at, at Aron
hafði gengit til baðs ok nökkurir lögunaut-
ar hans með honum. Fór hann þá ór baði
ok klæddist ok förunautar hans með hon-
um ok ganga svá búnir á strætit fyrir
stofudyrrnar. (Dæmin 10 og 11 úr Arons
sögu Hjörleifssonar).
I 5. dæminu er Jón murtur „fór í bað og drakk inni fyrst“ skýra
útgefendur Sturlungu: „drakk heima hjá sér“. En svo er framhald-
ið að Jón murtur fer í baðstofu, þ. e. veitingahús og drekkur þar,
þó að hitt sé líka til í dæminu að maðurinn hafi verið að leita sér
lækningar við einhverjum kvilla.
I tveim dæmunum hér að framan er um erlendar baðstofur/veit-
ingahús að ræða (5. og 11. dæmi). I sex af níu dæmum mögulegum
er baðið tengt trú manna (1., 2., 4., 6., 8. og 9. dæmið). I þremur
dæmum sem þá eru eftir verður ekki séð hvort um helgihald er að
ræða en í öllum þeim dæmum er baðið síðla kvölds (á baðferðatíma).