Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Blaðsíða 151
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1972
151
Hinar fáu sýningar um haustið stafa af því, að nokkrir, sem áttu
salinn pantaðan, hættu við á síðustu stundu að sýna og aðrir voru
þá ekki tilbúnir að hlaupa í skarðið. Annars er eftirspurn eftir Boga-
sal alltaf mjög mikil.
Safnauki.
Færðar voru 136 færslur í aðfangabók safnsins á árinu, og er það
nokkru færra en tvö árin á undan. Gripafjöldi, sem safninu hefur
bætzt, er þó meiri en þessi tala segir til um, þar eð oft er margt
gripa í sömu færslu. Helztu hlutir, sem safnið eignaðist á árinu,
eru þessir:
Bo?’ðstofuborð úr mahoní, úr eigu Jóns Sigurðssonar forseta, gef.
Ingólfur Bjarnason; stoklcabelti, sm. af Páli Þorkelssyni gullsmið,
(keypt, að nokkru fyrir gjafafé); púnsskeið úr silfri, sm. af Sig-
urði Vigfússyni gullsmið og forstöðumanni Forngripasafnsins, gef.
Þuríður Þórðardóttir; leifar af róðukrossi og Ijósahjálmur úr Víði-
mýrarkirkju, gef. Helga J. Potter, Bandaríkjunum; deshús úr silfri,
danskt, frá 1740, gef. Kristín Bjarnadóttir; vatnslitamyndir og blý-
antsteikmingar frá íslandi um 1865, afh. af Handels- og sofarts-
museet pá Kronborg; minnis- og hátíóarpenincjar frá ýmsum lönd-
um, frá ónefndum gefanda í sambandi við myntsýningu í Bogasal;
heiðurspeningur, er Kristján konungur IX veitti Jónasi Helgasyni
organista 1874, o. fl. úr eigu hans, gef. Margrét Jónasdóttir; líkan
af hákarlaskipinu Ófeigi (keypt); ýmsir munir eftir Jóhannes Helga-
son skurðlistarmann frá Gíslabæ, dánargjöf Guðbjargar Helgadótt-
ur; gufuvél úr línuveiðaranum Sigríði, svo og önnur úr fiskhúsi
Alliance h/f, gef. Vélskóli íslands; skákborð frá heimsmeistaraein-
víginu í skák 1972, gef. Skáksamband íslands; bátur, smíðaður af
Skarphéðni Gíslasyni á Vagnsstöðum, gef. Sigurður Ketilsson; gull-
medalía Sigurjóns Ólafssonar, er hann fékk á Listaháskólanum í
Kaupmannahöfn, gef. Guðni Ólafsson; vatnshraðamælir, sm. af ívari
Jónssyni, gef. Orkustofnun.
Aðrir gefendur eru sem hér segir:
Þorsteinn Guðmundsson, R.; Otto Christensen, Kaupmannahöfn;
Jóhann J. Ólafsson, Seltjn.; Elín Sigurjónsdóttir, R.; Jón Þorláks-
son, R.; Emil Jónsson, Hafnarf.; Málfríður Einarsdóttir, R.; Svava
Sigurgeirsdóttir, R.; Leifur Kaldal, R.; Kirsten Christensen, Kaup-
mannahöfn; Björn Blöndal, Laugarholti; Guðlaug Ólafsdóttir, R.;
Sigurður Guttormsson, R.; sr. Kolbeinn Þorleifsson, R.; Unnur Elías-
dóttir, R.; Jóhann Ólafsson, Skriðufelli; Fríða Knudsen, R.; Magnús