Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Page 78
82
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Aðferðir við athuganir
Annar og þriðji kafli Odda tölu benda til þess að upphafsmaður tölunn-
ar hafi gert sjálfstæðar athuganir á sólargangi. Efni þriðja kaflans er auk-
inheldur á þann veg að athuganirnar hljóta að hafa verið gerðar á svipaðri
breiddargráðu og Oddi bjó samkvæmt því sem áður var tilfært úr Stjörnu-
Odda draumi. Því leitar sú spurning á hugann, hvernig maður á slóðum
Odda í tíma og rúmi muni hafa borið sig að við athuganir af þessu tagi.
Annar kafli Odda tölu fjallar um breytingar á sólarhæð yfir árið. Oddi
hefur verið dável í sveit settur til að kljást við þennan vanda. Þar eð sólin
fer aldrei mjög hátt á loft á norðurslóð er auðveldara að fylgjast með breyt-
ingum á hæð hennar þar en á suðlægari slóðum. Best mundi vera að gera
slíkar athuganir á stað þar sem fjallahringur er tiltölulega fjarlægur en
kennileiti við sjónarrönd ná sem næst allan hringinn. Slíkir staðir eru þó
ekki á hverju strái enda má bjargast við minna. Þannig hefur fjallahring-
urinn, til dæmis í Múla eða í Flatey, getað gefið Stjörnu-Odda náttúrlegan
mælikvarða svipaðan og Þorsteinn surtur fyrirrennari hans hafði í Snæ-
fellsnesfjallgarðinum.21 Hann hefur ekki þurft að halda sig eingöngu við
hádegishæð sólar heldur hefur hann einnig getað nýtt sér athuganir á sól
kringum sólaruppkomu og sólsetur, því að þar koma breytingar á mið-
baugsbreidd sólar einnig skýrt fram.
Ef svipast er um frá Múla kemur í ljós að útsýn til sjóndeildarhrings er
þar allgóð á norðurhluta hans og hentug til að fylgjast til að mynda með
dögun og dagsetri, sólaruppkomu og sólarlagi á sumrin. Má geta þess til
gamans að í hlíðinni rétt við bæinn eru nú sléttar klappir sem hefðu hentað
afar vel sem athugunarstaður. Frá bæjarstæðinu sjálfu er útsýn hins vegar
ekki eins góð til suðurs því að bærinn stendur framan í fjallsrana sem
teygist til norðurs og er hallinn í hlíðinni í stærðarþrepinu 5°. Hins vegar
þarf aðeins að fara nokkur hundruð metra til vesturs til að útsýn opnist til
suðurs inn í Reykjadal. Þar eru meira að segja hraunhólar með skjólgóðum
hvilftum í toppinn sem gætu vel hentað til að gera kerfisbundnar athuganir
á gangi sólar miðað við fjallahring á vetrum þegar sól er lágt á lofti og í
suðurátt.
En Stjörnu-Oddi hefur ekki síður átt þess góðan kost að fylgjast með
stjörnum og sól í Flatey þegar Þórður húsbóndi hans sendi hann þangað
„á vit fiska". I Flatey er sjóndeildarhringurinn víður en þó með kennileit-
um. Fjöllin báðum megin Flateyjardals eru ákjósanlegur mælikvarði um
allt sem gerist lágt á himni kringum suður (sjá mynd 1) en önnur kennileiti
23. Þorsteinn Vilhjálmsson, 1989,93-94; sami höf., 1990,20-22.