Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Side 83

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Side 83
FORNLEIFAR Á SLÓÐUM STJÖRNU-ODDA 87 Eftir úttekt Björns Sigfússonar á tímatali sögunnar mundu þessir atburð- ir hafa gerst um 1058 samkvæmt hugmyndum höfundar.29 Biskupasögur og Sturlunga Samkvæmt Guðmundar sögu Arasonar, 19. kafla, „varð sá atburður út í Flateyju að þar ærðist kona og varð í bönd að færa". Konan læknaðist með vígðu vatni frá Guðmundi presti. Þetta jarteikn á að hafa orðið um 1191.30 í Jarteinabók Þorláks byskups annarri, 16. kafla, segir svo: Sá atburður varð þar er Flatey heitir að þangað kom heilagur dómur af klæðum hins sæla Þorláks biskups, en þar var haltur maður er Knútur hét. Hann mátti aldrei staflaust ganga. Og er hann heyrði og sá ferð fjölda manna til kirkjunnar, þá vildi hann fylgja öðrum mönnum og haltraði eftir þeim. En er hann kom til kirkjunnar, þá var hann óhaltur, og svo ávallt síðan.32 Þorlákur helgi var uppi 1133-1193 og jarteiknin í nefndri jarteiknabók eru talin hafa orðið í biskupstíð Páls Jónssonar 1195-1211.33 Samkvæmt þessu hefur þá verið komin kirkja í Flatey. Flatey er nefnd á 5 stöðum í safnriti því sem okkur er tamt að kalla Sturlunga sögu. í Prestssögu Guðmundar góða Arasonar segir að hann hafi verið heima um veturinn 1200-1201. En um vorið fór hann norður [um hérað] til Eyjafjarðar að heimboðum og í Flatey og norðan að alþingi og reið til þings.34 Frá þessu er einnig sagt með svipuðum orðum í Guðmundar sögu Ara- sonar.35 Nokkru síðar í sömu sögum segir frá því að biskupsefni er að láta í haf frá Eyjafirði. Einn af mönnum hans verður viðskila við hópinn. Þar koma þá að þrír menn róandi, Narfi úr Brekku, og voru komnir austan úr Flatey með skreið.36 29. Björn Sigfússon, 1940, xxix. 30. Biskupa sögurl, 1858,437-438; Byskujja sögurll, 1953,211-212. Um tímasetningu sbr. einnig Sturlunga sögu 1,1988,171. 31. Textinn er þar sem taldar eru „jarteiknir [semj hafa orðið í öðru byskupsríki á Islandi" (1953,206) og er því ljóst af samhengi að átt er við Fiatey á Skjálfanda. 32. Biskupa sögur 1,1858,366; Byskupa sögur 1,1953,208-209. 33. [Jón Sigurðsson og Guðbrandur Vigfússon], 1858,1 (þ.e. 50). 34. Sturlunga saga 1,1906, 231; Sturlunga saga l, 1946,146; Sturlunga saga 1,1988,180. - Orðalags- munur er á handritum á þessum stað. 35. Biskupa sögur 1,1858, 466 („Guðmundar biskups saga, hin elzta"); Byskupa sögur II, 1953, 248-249. 36. Sturlunga saga 1,1906, 267 (sjá þar orðalagsmun á handritum); Sturiunga saga 1,1946,158; Sturlunga saga 1,1988,207 (Prestssagan). Svipuð orð í Guðmundar sögu Arasonar, sbr. Byskupa sögur II, 1953,272. - Narfi úr Brekku kemur ekki annars staðar við sögu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.