Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1991, Síða 149
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ
153
Útgjöld vegna viðgerðar og endurbóta á gömlu húsunum urðu alls rúmar
11 milljónir eða um þremur milljónum hærri en fjárveitingar námu. Til
þessa liggja margar ástæður, en mikilvægt er að menn skilji, hve þörfin er
brýn alls staðar og óravegur frá því að það fé, sem er til ráðstöfunar, dugi
til nauðsynlegustu framkvæmda. í upphafi ársins var gerð áætlun um fram-
kvæmdir fyrir það fé, sem til ráðstöfunar var. Sum þeirra verkefna sem í
var ráðizt reyndust viðameiri en séð var fyrir, en reyndar er sjaldnast hægt
að sjá nákvæmlega fyrir umfang nauðsynlegrar viðgerðar áður en verkið er
hafið og verk er oft ekki hægt að stöðva fyrr en viðunandi áfanga er lokið.
Á árinu 1991 voru friðuð 25 hús til viðbótar þeim sem friðuð voru fyrir,
öll í Reykjavík. Friðuð hús eru nú 354 á landinu, þar af 215 kirkjur. Munar
þar mest um, að kirkjur reistar fyrir 1918 og hús reist fyrir 1850 eru nú
friðuð með ákvæðum þjóðminjalaga. Flefur verið gerð bráðabirgðaskrá um
öll friðuð hús á landinu.
Fíinu langa þrefi um Isafjarðarkirkju lauk svo, að menntamálaráðherra
heimilaði söfnuðinum að taka kirkjuna niður eftir að Húsafriðunarnefnd
hafði mælt með því, enda fullreynt, að ekki tækist samkomulag um viðgerð
hennar. Allir byggingarhlutar kirkjunnar voru merktir, húsið tekið sundur
og viðir settir í geymslu.
Hafinn var undirbúningur að samvinnu við Skipulagsstjóra ríkisins um
húsakannanir í þéttbýli. Einnig var skipulögð skoðun og skráning friðaðra
kirkna sem nákvæmast á vegum nefndarinnar.
Framlög í Húsafriðunarsjóð voru alls 21 milljón kr. Úthlutað var 62
styrkjum fyrir lok maímánaðar, en umsóknir voru 73 alls. Flestir styrkir
voru til viðgerðar og endurbóta á húsum, en nokkrir til að kosta rannsóknir
og áætlunargerð.
Eftirtalin verkefni hlutu styrki úr sjóðnum:
Friðuð hús:
Lækjargata 14A, Reykjavík 300.000
Sauðárkrókskirkja 300.000
Tjarnargata 22, Reykjavík 150.000
Tjarnargata 26, Reykjavík 300.000
Þingholtsstræti 19, Reykjavík 150.000
Hermannshús, Flatey 150.000
Klausturhólar, Flatey 300.000
Tjöruhús, ísafirði 800.000
Aðalstræti 6, Akureyri 300.000
Aðalstræti 44, Akureyri 300.000
Aðalstræti 54, Akureyri 100.000