Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Blaðsíða 87
KVÖLDMÁLTÍÐ AÐ STÓRA-ÁSI
91
gripi þeirra í byrjun aldarinnar. Síðan hafa þær verið endurskoðaðar og
fengið viðbætur eftir föngum. Matthías endurskoðaði sjálfur allmargar
ferðaskýrslur, og þeir þjóðminjaverðir sem á eftir komu, Kristján Eldjárn
og Þór Magnússon, hafa báðir gert sér far um að yfirfara og bæta við
skýrslurnar.
Það er auðvelt að sjá fyrir sér Matthías Þórðarson og ímynda sér hvern-
ig honum hefur verið innanbrjósts þegar hann reið um landið og kom að
afskekktri kirkju sem lítið var vitað um, og fann þar merka dýrgripi, gam-
alt silfur, forna ljósahjálma, altarisbríkur og klukkur, sem umheimurinn
vissi ekkert um. Þetta hafa verið löng og oft á tíðum strembin ferðalög, en
uppskeran oft mikil. En tímarnir hafa breyst mikið síðan Matthías var á
ferðinni. Kirkjur hafa verið aflagðar, aðrar komið í staðinn, einkum í þétt-
býli, - hlutir hafa týnst, skemmst, eða hafa einhverra hluta vegna verið
teknir til annars brúks. Og svo eignast kirkjur nýja gripi, sem eru þess
verðir að vera settir á skrá yfir friðaða kirkjumuni. Því þarf stöðugt að
yfirfara kirknaskrárnar.
III
a) Gripir í Stóra-Askirkju í tíð Matthíasar
Matthías Þórðarson kom í Stóra-Áskirkju 16. júlí 1909. Um morguninn
hafði hann skoðað Reykholtskirkju, og síðar um daginn skoðaði hann og
mældi upp steina í Húsafellskirkjugarði. Hér fer á eftir lýsing hans á
kirkju og gripum Stóra-Áskirkju:
Kirkjan 13 ára gömul.
Altaristnfla nýleg, olíumálverk eftir einhvern danskan málara (Hansen?), upprisan.
Altari frá 1837.
Kaleikur og patína úr silfri, ekki mjög gamalleg, stimpluð IIE, hæð kaleiks 14,8 sm.
þverm. skálar 7,7 sm. þvermál stéttar 8,5 sm. þvermál patínu 9,8 sm.
Bakstursbaukur úr tré, renndur og málaður.
Koparstjakar 2, stórir um sig að neðan, þvermál 14,5 sm.
Hökutl úr rauðu flaueli nýlegur.
Altarisklæöi sömuleiðis úr rauðu flaueli frá 1879, merkt K.M. (Kristín Magnúsdóttir,
gömul kona, er dó norður í Garði í fyrra).
Koparhjálmur lítill fyrir 5 kerti, gamallegur.
Kirkjuhurðarskrá vegleg og stór með 3 læsingarjárnum og stóru skráarlaufi; á því er ár-
talið 1756; vídd 30,2 sm, eftir Einar Þórólfsson í Kalmannstungu, önnur er í Reykholti,
nú fyrir hjalli þar.
2 klukkur, sú minni br. 26 sm gamalleg; sú stærri br. 30 sm með áletrun:
SOLI DEO GLORIA ANNO 1726.
í garðinum eru 8 legsteinar frá Húsafelli frá 19. öld.