Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Blaðsíða 60
64
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
sólmyndamálari.' Titillinn helgast af því að sólmyndir voru annað heiti á
ljósmyndum í frumbernsku ljósmyndunar hér á landi. Ljósmyndin var
slíkt nýmæli að hún hafði enn ekki fengið endanlegt heiti í málinu.
Seglskipið Fox sigldi frá Bretlandi um Færeyjar til Islands og síðan
áfram til Grænlands. Zeilau nefnir ljósmyndarann aðeins einu sinni í frá-
sögn sinni af ferðinni, að kynningu frátalinni, en það er meðan dvalið er í
Færeyjum. Flann segir frá því, að þegar hluti leiðangursmanna snýr aftur
úr landkönnunarleiðangri til Flaldarsvíkur á Norður-Straumey „var ljós-
myndarinn í fullri vinnu, heimamönnum til mikillar gleði; það skemmti
þeim mikið að sjá myndir sínar tilbúnar á svo skammri stundu." Mynd-
irnar hafa verið teknar á votar plötur, en þær varð að framkalla strax að
töku lokinni. Þegar leiðangurinn kom til Islands, 12. ágúst 1860, var tekið
land á Djúpavogi. Nokkrir leiðangursmanna, þar á meðal Zeilau, fóru í
landkönnunarferð um Austur- og Norðurland og yfir Kjöl til baka. Ljós-
myndari leiðangursins var ekki samfylgdarmaður Zeilaus og því ekki að
vænta frekari frásagna um Woods í bók hans.
Skipinu var hins vegar siglt með suðurströndirini til Reykjavíkur. Arn-
ljótur getur þess á fimm stöðum í dagbók sinni að Woods hafi tekið ljós-
myndir. Eins og Zeilau nefnir hann að teknar hafi verið myndir af fólki og
bænum á Haldarsvík á Straumey. Þann 13. ágúst meðan enn er dvalið á
Djúpavogi skrifar Arnljótur: „Nú var mæld höfnin og fjörðurinn á ýmsa
vegu, teknar myndir af mönnum og landi, steinum safnað og grösum."^
Síðar í dagbókinni segir: „Vjer fórum frá Berufirði 17. eður föstudag og
komum að Reykjavík 20. eður á mánudagskvöldið. A miðvikudaginn fór-
um við Mr. Woods til Krísuvíkur og komum aftur á fimmtudagskvöldið.
Við söfnuðum grösum og steinum og hann tók ljósmyndir, 12 að tölu,
sumar í Hafnarfirði og sumar að námunum."" Arnljótur virðist síðan end-
urtaka sig, því eftir að hafa getið komunnar til Reykjavíkur á ný og þess
að námurnar í Krýsuvík séu til sölu, segir hann: „Woods tók myndir af
námunum."" Síðasta vísun til myndatöku Woods í þessum dagbókar-
slitrum er eftir að komið er til Grænlands. Meðan dvalið er í Julianeháb,
segir frá því að Woods hafi átt að taka mynd að því er virðist úr kopar-
námum, „en eigi varð af því, sem og líklegt var."'"
Ekki fer frekari sögum af myndatökum Woods. Fjórar ljósmynda hans
úr Islandsdvölinni hafa varðveist í myndadeild Konunglega bókasafnsins
í Kaupmannahöfn.'" Aðeins er vitað um tvær eldri ljósmyndasyrpur með
útimyndum frá fslandi sem varðveist hafa. Tvær daguerreótýpur teknar af
Alfred-Louis-Oliver Des Cloizeaux, frönskum náttúrufræðingi, árið 1846 í
Reykjavík eru varðveittar í Musée National des Arts et Traditions Popu-
laires í París." Eftirtökur þeirra eru í Ljósmyndasafni Reykjavíkurborgar.