Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1994, Blaðsíða 145
SIGURJÓN PÁLL ÍSAKSSON
ÞORGEIR S. HELGASON
VETRARMYNDIR FRÁ NESIVIÐ SELTJÖRN
OG LAUGARNESI
Loftmyndir og leit aðfornleifum
Ljósmyndun úr lofti er nú mikið notuð af fornleifafræðingum við leit að
fornum minjum. Er þar bæði átt við hefðbundnar loftmyndir teknar lóð-
rétt niður, sem henta vel til skráningar og kortagerðar, og einnig skámynd-
ir teknar út um hliðarglugga, sem eru myndrænni og gefa oft skemmti-
legri yfirsýn.
í kornræktarlöndum Evrópu hagnýta menn sér mest fyrirbrigði sem
fram kemur á akurlendi, einkum í þurrkatíð, en þá má oft greina talsverð-
an breytileika í hæð, þéttleika og þroska gróðursins, sem gefur vísbend-
ingu um það sem leynist undir yfirborðinu. Þar sem jarðvegur er rakur og
auðugur að áburði, eins og yfir fornum skurðum og gryfjum, verður gróð-
urinn hávaxnari, gróskumeiri og þéttari en annars staðar. Yfir fornum
grjóthleðslum koma hins vegar fram öfug áhrif. Þar er moldin þynnri og
þurrari og gróðurinn verður því lágvaxnari, kyrkingslegri og gisnari en í
kring. Þegar sól er lágt á lofti verða þessi fyrirbrigði mjög greinileg, en einn-
ig getur komið fram litarmunur, einkurn þegar gróður er byrjaður að
skrælna af þurrki. í akuryrkjulöndum hefur þetta reynst afar gagnlegt við
fornleifaleit á stórum svæðum. Enn má nefna að í frosti geta neðanjarðar-
fyrirbrigði komið fram sem misjafnlega hrímað jarðaryfirborð. Loks hefur
breytilegur jarðvegslitur í plægðu landi oft komið að gagni, t.d. við að
finna forna hauga. Einkum getur þetta orðið áberandi skömmu eftir rign-
ingarskúr, því að það fer eftir gerð jarðvegsins hve fljótt hann þornar.
Fyrsta loftmyndataka sem gerð var í fornleifafræðilegum tilgangi, fór
fram úr loftbelg yfir Stonehenge á Suður-Englandi árið 1906. Þremur árum
áður hafði Wright-bræðrum tekist að koma flugvél á loft með eigin vélar-
afli, en það var þó ekki fyrr en á árum fyrri heimsstyrjaldar að stórstígar
framfarir urðu í flugvélasmíð. Talið er að flugmenn í herjum Breta, Frakka
og Þjóðverja hafi á heimsstyrjaldarárunum uppgötvað nánast samtímis