Aldamót - 01.01.1894, Síða 15
15
um stað er á enda, þá taki hver einstakr af oss.
með sinni litlu trú virkilega til starfa fyrir málefn-
ið drottins, hvað sem öllum erviðleikunum líðr, — t
stað þess að leggja árar í bát og gjöra ekkert.
Látum það verða ávöxtinn af setu vorri og sam-
vinnu á þessu kirkjuþingi, að hver einstakr af oss
upp á orðið drottins, eins og Símon Pétr forðum,
leggi út á djúpið, og, án alls tillits til þess, hve er-
vitt hefir gengið i liðinni tíð, varpi út neti sínu til
fiskidráttar, — haldandi því föstu, að með því móti,
en að eins með því móti, muni drottinn senda oss
blessan sína og auka oss trúna.
»Hér flýtr skip á öldum, að fiska gengr tregt,
en fljótum ei á grunnmiðunum lengr;
á djúpið skal halda, þótt virðist voðalegt,
og vitum, hvort þá ei betr gengr.
0, leggjum út á djúpið í drottins nafni þá,
og drögum vel og höldum svo að landi,
að lending vér megum 1 lifsins höfnum ná;.
— en leiðið um djúpið er guðs andi*.1
1) >Sameiningin«t VII, 7.