Aldamót - 01.01.1894, Blaðsíða 64
64
sveina hans. Þeir spurðu hann, hví maður þessi
væri blindur borinn, hvort það væri fyrir synd
hans eða foreldra hans. Og Jesús svaraði: Hvorki
syndgaði þessi nje foreldrar hans, heldur er þetta
örðið, svo verk guðs verði á honum opinber. Sam-
anber dæmi Jobs. I þessu orði frelsarans liggur
bæði huggunin og skýringin.
Jeg get eigi annað en minnzt í þessu sambandi
á sögu eina, er mjer var sögð á þessu liðna ári af
öldungi einum í kirkju vorri hjer í landinu, sem
helgaði allt sitt langa líf mannkærleikans þjónustu
og nú er rjett kallaður heim til fagnaðar herra síns.
Þegar jeg var ungur prestur, sagði hann, dvaldi
jeg um stund á Þýzkalandi heilsu minnar vegna.
Á ferðum mínum þar kom jeg loks til bæjarins, þar
sem ættmenn mínir höfðu dvalið í fyrndinni. Þar
er stórkostleg og víðfræg mannkærleikastofnun fyrir
alls konar fólk, sem eitthvað mikið gengur að. Jeg
ljet það vera fyrsta verk mitt að heimsækja hana.
Hjartað brann í brjósti mjer, þegar umsjónarmaður
stofnunarinnar leiddi mig á milli þessa aumingja
fólks og, jeg sá sársaukann í öllum hans átakanlegu
myndum; en það brann ekki síður í brjósti mjer,
þegar jeg sá þá aðdáanlegu opinberun mannkær-
leikans, sem þarna hellti viðsmjöri líknarinnar i
hvert einasta sár. Að síðustu leiddi hann mig til
fólks, sem myrkur þunglyndisins grúfði yfir. Á með-
al þess var stúlka ein, heyrnarlaus og mállaus, sem
hann benti mjer á. Jeg sá þegar, að hún var ólík
öllu hinu fólkinu; hún var með svo glöðu bragði,
að ánægjan skein úr augum henni. Þessi stúlka
hefur verið hjer í mörg ár, sagði umsjónarmaðurinn.
Hún er fædd mállaus og heyrnarlaus. Og þegar