Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1948, Page 31
33
Strengplæging, en áburðurinn borinn undir strengina, sem
því næst hefur verið komið í samt lag.
Árangur þessara tilrauna sést á töflum XXIX—XXXII.
TAFLA XXX.
Samanburður á mismunandi áburðaraðferðum með mykju 1913—1915.
(Uppskéra í 100 kg heyhestum á ha.)
Aðterðir Áburður pr. ha 1 ár Áburður 2-3 ár Meðalupps. í 3 ár Uppskeru- hlutföll
1. Óhreyft, yfirbreitt 47.5 tn. Tilb. áb. 43.1 100.0
2. Oaddvaltað 1913 0.0 - 42.3 98.1
3. Gaddvaltað 1913 47.5 - — 54.0 125.3
4. óhreyft, yfirbreitt 25.2 - 39.0 90.5
5 Gaddvaltað 1913 25.2 - 44.8 103.9
Borin eru 22 þús. kg mykju á ha árlega á 1. og 2. lið til-
raunanna 1925—1928, en 56 þús. kg undir strengi á 3. lið
1925 og síðan 8 þús. kg ofan á árlega. Áburðarmagnið verð-
ur því 88 þús. kg samtals á hvern lið ("tafla XXXI).
Tilraunin 1931—1936 er samanburður á mismiklum und-
irburði af liaug og yfirbreiðslu. Fyrstu tveir liðirnir fá að-
eins yfirbreiðslu, jafnmikla ár hvert, en annar þeirra hefur
verið plægður í upphafi, hinn ekki. Þriðji liðurinn fær í
upphafi tveggja ára forða af haug, undirborinn, sá fjórði
4ra ára forða og sá fimmti og sjötti sex ára torða, undirbor-
inn. Auk haugsins fá allir liðirnir, að undanskildum 6. liðn-
um, jafna breiðslu af saltpétri eða hlandi árlega. Eftir tvö ár
voru þrír fyrstu liðirnir búnir að fá jafnan áburð, eftir fjög-
ur ár voru tveir fyrstu liðirnir og fjórði liðurinn búnir að
fá jafnan áburð og loks eftir sex ár voru yfirbreiddu liðirnir
tveir og fimmti liðurinn jafnir. Sjötti liðurinn hafði þá
fengið minni áburð, senr nam yfirbreiðslu hinna liðanna
af saltpétri eða hlandi í sex ár (Tafla XXXII).
3