Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1948, Page 42
44
B. Nýyrkjutilraunir (Grasrækt)
Tilraunum þessum má skipa í 3—4 nokkurn veginn
skýrt afmarkaða flokka, sem verða: 1. Tilraunir með sam-
anburð mismunandi tegunda af túnjurtum (grasa- og belg-
jurta) og samanburð á fræblöndum. 2. Tilraunir með sáð-
magn og sáðtíma. 3. Tilraunir með samanburð á ræktunar-
aðferðum. Loks verður svo 4. Ýmsar tilraunir, sem ekki geta
fallið undir neinn hinna flokkanna.
Þegar á fyrstu árunt Ræktunarfélagsins voru fram-
kvæmdir, á vegurn þess, margar nýyrkjutilraunir, sem
fyrstu árin snerust þó mest um reynslu og samanburð á
ýmsum túnjurtum, er hér höfðu eigi áður verið reyndar.
Þrátt fyrir þetta er ekki um auðugan garð að gresja, í til-
raunaskýrslum félagsins frá þessum árum, varðandi nýyrkju,
því að margar þessara tilrauna hafa aðeins gefið ástæðu til
umsagna og athugana, en eigi skilað neinum talnafróðleik,
sem unnt sé að vinna úr. Þótt þessu sé nú þann veg farið,
hafa athuganir þessar vafalaust haft sína þýðingu og mark-
að ákveðnar stefnur í grasrækt. Auk þessa eru í mörgum til-
raunum félagsins frá fyrstu árum þess engir samanburðar-
reitir, og verða þær því að teljast mjög ónákvæmar. Síðustu
áratugina hefur verið gerður fjöldi tilrauna varðandi þenn-
an þátt jarðræktarinnar og í sambandi við þær tilraunir má
liafa veruleg not hinna eldri tilrauna og athugana. Margar
yngri tilraunirnar eru líka byggðar á þeim eða hafa tekið
svipuð verkefni til meðferðar. I öllum tilraunum síðustu
áratugina hefur þeirri reglu verið fylgt að hafa endurtekn-
ingar í tilraununum, helzt jafnmargar tilraunaliðunum. í
einstaka tilfellum er þó vikið frá þessari reglu, þó eru aldrei
færri en þrjár endurtekningar.